ágúst 30, 2008

Ágúst á enda

Já, ágúst er senn á enda og á mánudaginn byrja ég að vinna eftir árs fæðingarorlof. Það verður bara spennandi þó svo að mér sé ekki farið að leiðast neitt hér heima og hef enn næg verkefni sem bíða þá bara komandi haustkvölda. Valgeir er að fara í hálfa vinnu fram að áramótum og Elvar Hrafn er búinn að vera í aðlögun hjá Ragnheiði dagmömmu síðustu viku. Það gekk bara nokkuð vel en stundum þurfti að taka hann upp úr barnahópnum og leyfa honum að sitja í stól og horfa á hina og átta sig svolítið betur hvernig þetta gengi fyrir sig allt saman. Þá var gott að hafa Tuma sinn ( það er bangsinn hans sem hefur næstum sama tilfinningagildi fyrir hann og Aggis hefur fyrir Elmu Hlín, alveg frábært að eiga svona góða bangsa ). Reyndar beit hann eina stallsystur sína í fingurinn hjá dagmömmunni svo hann verður undir vökulum augum og vonandi gerist það aldrei aftur......
Elma Hlín byrjaði aftur í leikskólanum um miðjan ágúst og var spennt að fara á ný, nú verður hún í skólahóp og svo verður hún reglulega í útistofu úti í Björnslundi. Það verður spennandi að fylgjast með því öllu saman. Reyndar sagði hún við mig á dögunum að hún vildi að hún væri að fara í skóla. Það kemur að því fyrr en varir...
Elvar Hrafn ( 11.155 kg og 77.5 cm ) varð ársgamall 15. ágúst og fannst alveg rosalega gaman að láta syngja fyrir sig afmælissönginn. Það má sjá videóklippu af því á Facebook síðunni minni fyrir áhugasama. Það videó var reyndar tekið upp í afmælisveislu hans og Þórdísar Óla og Sirrýjar dóttur úti í Danmörk. Það var svona upp á sportið sem við héldum smá veislu þar bara til að geta sagt frá því að hafa haldið afmælisveislu í útlöndum. Við fórum sem sagt til Danmerkur 29. júlí og vorum fram til 7. ágúst. Fyrstu 2 dagana vorum við í Kaupmannahöfn en svo fórum við með 5dk ( Fimmtudagsklúbbnum ) til Lalandia. Þar áttum við góða daga og var sú ferð enn ein skrautfjöðurin fyrir þetta sumar. Eftir að við komum heim fórum við í sveitina í nokkra daga og svo fórum við á Landbúnaðarsýninguna á Hellu. Þá sömu helgi fórum við líka á Bráðamóttöku barna því 1. árs sprautan fór svo rosalega í Elvar Hrafn að lærið á honum stokkbólgnaði. Við fórum með hann á Heilsugæsluna, þar var okkur bent á að fá ofnæmislyf fyrir hann en ef hann fengi hita þá þyrfti að endurmeta stöðuna. Nú, þegar leik Íslendinga og Spánverja lauk með stór sigri okkar þá vaknar Elvar Hrafn af dúrnum sínum og var kominn með hita svo ég gat ekki fagnað úrslitunum með viðeigandi hætti heldur hringdi beint á Heilsugæsluna og þar var okkur bent á að fara strax á Bráðamóttökuna. Þar komu 2 læknar að líta á hann og það varð úr að við færum bara heim aftur en áttum að koma aftur um morguninn. Ef hann yrði verri þá ættum við auðvita að koma strax. Morguninn eftir hafði þetta versnað, hann var rosalega bólgin, lærið var tvöfalt og er það engin smá smíð fyrir..... rautt og heitt viðkomu. Við fórum aftur niðureftir og nú komu 3 læknar að skoða hann. Það var ekki vitað hvað olli þessu, gat verið sýking eftir sprautuna, gat verið ofnæmi og gat líka verið svona rosaleg viðbrögð við bólusetningunni. Það var ákveðið að setja hann legg til að taka blóðsýni og til að hafa hann þá tilbúinn ef þyrfti sýklalyf í æð ef þetta reyndist vera sýking sem þeir voru helst farnir að hallast að. Eftir 6 stungur og ógurleg öskur og grátur þá gafst læknirinn upp, við vorum bara 4 sem héldum honum, og sagði að hann væri of sterkur. Svo það var bara tekin blóðprufa úr ristinni og við máttum bíða í 2 klst eftir niðurstöðu úr henni. Hann var ekki með sýkingu og þetta orsakaðist af viðbrögðum líkamans við einhverju af efnunum í bólusetningunni. Næst þegar hann fær bólusetningu þá þarf hann að fá efnin eitt og eitt í einu og með viku millibili. Hann fékk sprautuna á fimmtudegi og á sunnudeginum var bólgan farin að hjaðna og hann var næstum samur á lærinu á mánudeginum.
Þannig fór um sjóferð þá en hvert ætli leiðin liggi nú í september?
Frá því verður greint hér síðar í máli og myndum, aðalega myndum.

Posted by ÞóreyArna at 09:33 EH