maí 02, 2008

Sumarstemming

Já það er sko búin að vera sumarstemming á okkur hér í Norðlingaholtinu. Það er svo notalegt að finna lífið vakna svona á vorin og eins gott að njóta þess því rigningin mætir á morgun og hver veit hvað hún á eftir að stoppa lengi.....
Það hefur ýmislegt á daga okkar drifið síðan síðast. T.d fórum við í Ölver með 5dk yfir eina helgi í apríl, það var alveg stórgaman og helgina þar á eftir fórum við í bústað með tengdó sem er alltaf voða notalegt. Reyndar hrjáði okkur smá heilsuleysi en það er nú allt gengið til baka fyrir utan horið hjá Elvari Hrafni sem fer þó minnkandi. Svo erum við búin að fara í nokkur afmæli og endurheimta tengdadótturina og hennar ágætu foreldra frá Argentínu.
Nú er Elvar Hrafn farinn að fara um allt en enn á maganum. Hann fer upp á fjóra í skriðstellingu og setur annann fótinn fram en svo er ekki komin meiri samhæfing hjá honum og hann skellir sér fram á bringuna og fer svo áfram á maganum með því að tosa sig áfram á höndunum. Svo var hann farinn að setja hendurnar upp í loftið þegar hann var spurður hvað hann væri stór en svo fannst honum nóg um eftir viku og hætti því bara :o) Hann er farinn að reyna að brölta upp við okkur og finnst fátt skemmtilegra en að standa. Algert yndi þessi strákur. Hann fór í 8 mánaða skoðun um miðjan apríl mánuð og þá reyndist hann vera 9.5 kg og 71.5 cm. Til gamans þá koma hér upplýsingar um okkur Elmu Hlín þegar við vorum á sama aldri. Elma Hlín: 6.625 kg og 69.5 cm Þórey Arna: 9.490 kg og 71.5 cm. Og svona til gamans þá náði Elma Hlín 9.5 kg þegar hún varð 18 mánaða. Já það er smá munur á holdarfarinu á þeim :o) Reyndar er svolítið fyndið að klípa í fellingarnar á Elvari Hrafni núna, þær eru þarna en eru frekar tómar í að klípa.

Ég er búin að græja myndir til að smella á myndasíðuna en man ekki í svipinn aðgangsorðið fyrir 2008 albúmið og þar sem Valgeir er úti að leika sér að rafmagnsbílnum (fjarstýrða) þá bíður það þar til hann er kominn aftur.

Vonandi eigið þið góða daga gott fólk

Posted by ÞóreyArna at 11:43 EH