mars 19, 2008

Myndir og meir

Var að setja inn slatta af myndum af þessum annars myndalegu börnum okkar.

Annars er það helst í fréttum að hér á bæ hefur verið óttalegt heilsuleysi en Valgeir hefur þó farið sýnu verst út úr því. En mitt í þessu öllu tók Elvar Hrafn sínar fyrstu tennur, báðar í neðri góm. Hann var eitthvað stúrinn en ég veit ekki hvort það skrifast á tennur eða hor og hita. Kannski sitt lítið af hvoru. Nú borðar hann orðið þrisvar sinnum á dag og um leið og síðustu skeiðinni af hafragrautnum hefur verið sporðrennt á morgnanna þá kemur rembingssvipur og þá er honum kippt úr stólnum og skellt á koppinn, með góðum árangri :o)
Í nótt er þriðja nóttin sem hann fær ekki að drekka og vonandi gengur hún vel. Fyrsta nóttin gekk eins og í sögu, Valgeir sinnti honum og þetta var ekkert mál og bara smá væl. Í nótt hins vegar var Valgeir ómögulegur vegna höfuðverkjar svo ég varð að sjá um hann og auðvita er ekkert gaman að fá að vera í mömmufangi en fá ekkert að drekka svo það var svolítið væl í ca 30 mín en það var þó alltaf hægt að leiða hugann að öðru. Það verður spennandi að sjá hvað gerist í nótt. Vonandi verður Valgeir þó betri því við erum á því að það sé betra að pabbar sjái um þessa hlið :o)
Annars er norðurför á morgun ( tja, eða síðar í dag, klukkan er jú komin fram yfir miðnætti ) og við eigum örugglega eftir að bralla eitthvað skemmtilegt yfir páskahátíðina auk súkkulaðiáts!!!

Vonandi þið líka :o)
Gleðilega páska

Posted by ÞóreyArna at 12:13 FH