desember 06, 2007

Gamli minn

Jú jú, hann Valgeir er kominn á fertugsaldurinn. Það hlaut að koma að því og svei mér, hann er bara ekkert breyttur og ekki að sjá að aldurinn fari illa í hann. Alla vega hefur honum farið fram í Wii leikjum. Hann fékk nebblega eina slíka tölvu í afmælisgjöf og það er þvílíkt gaman hjá okkur hjónunum í keilu fram eftir kvöldi, reyndar ekki eins gaman í hafnarbolta því við erum bara ekki alveg nógu góð með kylfuna... ennþá...
En í tilefni af þessum merka áfanga þá var haldin smá gleði hér heima á laugardagskvöldið og var þemað Kúrekar. Það var rosa vel heppnað, alla vega að okkar mati, og að sjálfsögðu eru komnar inn myndir af því í aukaalbúmi undir Nóvember albúminu.
Þegar kúrekaskrautið var tekið niður þá fór jólaskrautið að skríða jafnt og þétt upp um alla veggi og glugga og jólin eru að ná tökum á okkur jafnt og þétt. Einu jólapakkarnir sem þó eru afgreiddir eru fyrir Róbert og co í danaveldi. Vona að þeir skili sér í næstu viku, verða settir í póst í Köben á morgun :o)

Vona að þið hafið það gott þarna úti öll sömul og njótið aðventunnar eins vel og kostur er á.

Posted by ÞóreyArna at 11:14 EH