nóvember 14, 2007

Nýjar tölur

Boltinn okkar var í 3ja mánaða skoðun í dag og það er ekkert lát á dugnaði hans í vextinum. Hann er orðinn 7.105 kg og 62,5 sm. En það er einmitt sama þyngd og Elma Hlín var í 9 og 1/2 mánaða
-híhíhí

Annars er bara fátt í fréttum af okkur, engar fréttir eru góðar fréttir.

Það eru nýjar myndir í boði...

Posted by ÞóreyArna at 09:50 EH

nóvember 05, 2007

Tíminn flýgur...

...trúðu mér, taktu maður var á þér

Já, það er kominn nóvember og ekki nóg með það heldur er kominn 5. nóvember. Og það er merkisdagur því í morgun var skorið gat á magann á henni Guðbjörgu hans Ara og þaðan kom 16 marka drengur. Innilega til hamingju með drenginn og ég vona að allt gangi vel hjá ykkur. Þá er bara að bíða eftir fréttum af Önnu Margréti, en þau systkinin eru svo samtaka í þessu :o) Hún hlýtur að fara að verpa hvað úr hverju, er alla vega komin á tíma.
Sólrún á líka bara nokkra klukkutíma í land á sinni meðgöngu ( sinni SÍÐUSTU að hennar eigin sögn, ein hey... þessi var ekkert plönuð svo hver segir að það verði ekki fleiri slíkar - híhíhí ).

Af okkur er gott að frétta, fórum í bústað um miðjan október og áttum þar góða helgi með góðum félagsskap. Á laugardaginn var svo þemadagur hjá okkur stelpunum í 5dk ( fimmtudagsklúbbnum ) og Inga Birna og Kristín Amelía voru í nefndinni að þessu sinni. Nefndin var einmitt skipuð af nefnd síðasta árs, svo kallaðri Skemmtilegasta nefndin, en hana skipuðu einmitt ég og María Helen og þá var þemað grænt. Alla vega, alveg ógó gaman hjá okkur og það er víst óhætt að segja að nýskipaða nefndin - Sirrý og Sigga Maja - eiga spennandi tíma í vændum við undirbúning næsta slíka þemadags.

Það er líka gott af börnunum okkar að frétta. Elma Hlín var reyndar ekki alveg að nenna í leikskólann í morgun en hún er nú alltaf kát og nóg að gera hjá henni þegar við sækjum hana. Hún og Jóhann Björgvin eru alltaf jafn góðir vinir og það er enn á dagskránni hjá þeim að giftast. Þau eyddu nánast öllum gærdeginum saman og þau eru svo góð að leika sér saman, auðvita ekki alltaf sammála en þú vinna úr sínum málum sjálf. Það þarf sko ekkert að "segja út af þér" þegar þau eru að leika saman. En það myndi á góðri íslensku útleggjast sem sögnin að klaga!!
Elvar Hrafn heldur áfram að vaxa og dafna, já og vaxa!!!!
Hann fór í 9. vikna skoðun 16. okt. og þá var hann 6,2 kg og gaman að segja frá því að systir hans var 6,3 kg 6 mánaða. Smá munur..... Hann á næst skoðun 14. nóv. og það verður spennandi að heyra nýjustu tölur þá. Það er alla vega óhætt að segja að holdafarið á þeim er ekki alveg það sama, hann er með fellingar þar sem hún var ekki einu sinni með húð :o)
Við Valgeir höfðum orð á því í gær að eftir að hann fitnaði svona að þá hefur hann líkst Emil meira, þeir voru ekkert líkir nýfæddir, enda Elvar Hrafn töluvert minni. En með meiri fyllingu í kinnunum ( já og undirhökunni sem hefur fengið viðurnefnið Rjómabúið ) þá líkjast þeir bræður meir.

Í dag eru 25 dagar þar til húsbóndinn kemst á fertugsaldurinn!!!

Það eru komnar inn fleiri myndir og ég minni á að til að sjá enn og fleiri myndir þá þarf að skrá sig inn á síðuna.

Segjum þetta gott í bili, meira síðar

Posted by ÞóreyArna at 11:38 FH