september 25, 2007

Að heiman

Tja... alla vega ég, Elma Hlín og Elvar Hrafn. Við erum á Bálkastöðum fram yfir næstu helgi en þá verður einmitt heimalandasmölunin þetta árið. Alltaf stemming þá skal ég segja ykkur. Við komum norður með ma og pa á sunnudaginn eftir að hafa verið í fimmtugsafmælinu hennar Dódýjar á laugardaginn og við gistum bara á Hvanneyri eftir veisluna, þessa líka fínu veislu.

Mér heyrist Valgeir hafa stíft plan meðan við erum að heiman við að vinna upp todo lista sem hefur safnast á siðan Elvar Hrafn fæddist. Einhversstaðar á þessum lista er viðfangsefnið að laga myndasíðuna þannig að hægt verið að setja inn nýjar myndir..... mig grunar að þetta viðfangsefni sé ekki enn komið með stöðuna: checked :o)
En það kemur og þegar það gerist loks þá kemur bara haugur af myndum af þessu frábæru börnum okkar, já og kannski nokkrum öðrum.
So stay tunned.....

Posted by ÞóreyArna at 05:52 EH

september 16, 2007

Og hann heitir....

.... Elvar Hrafn :o)

Posted by ÞóreyArna at 08:06 EH

september 10, 2007

Engar myndir

Nú haldið þið örugglega að það sé bara ekki búið að taka neinar myndir af þessari fjölskyldu undanfarið, en það er sko ekki allskostar rétt. Það er búið að taka haug af myndum en þær hafa ekki ratað inn á Internetið vegna einhvers smá vandamáls við að importa þeim, það kemst vonandi í lag á næstunni svo þið getið nú fylgst með hvernig við vöxum og döfnum, öll :o)
Þeir sem eru orðnir mjög myndaþyrstir geta svalað þeim þorsta hér.
Þessar myndir voru teknar nokkrum dögum áður en hann fæddist og þegar hann var 17 daga gamall. Ef það er einhver óléttur þarna úti þá mæli ég með svona myndatöku, það er svo gaman að eiga þessar myndir og sjá hvað mikið breytist á skömmum tíma. Þá er yndislegt að fara til hennar Kristínar Þóru ljósmyndara, svo afslappað andrúmsloft og þægilegt.

Annars er bara gott af okkur að frétta. Það herjaði kvef á fjölskyldunni í síðustu viku og litli pjakkurinn fékk meira að segja hita en hann brá af honum fljótt en horið hangir enn í nösinni. Elma Hlín fór norður í réttir með Sóleyju Láru um helgina og þar var dekstrað við hana á alla kanta, ragast í rollum og farið á hestbak. Restin af fjölskyldunni fór hins vegar í brúðkaup Bjarna og Bylgju, þar gengdi Valgeir því veigamikla hlutverki að vera svaramaður brúðgumans. Þeir voru ekkert smá sætir vinirnir upp við altarið. Og ekki var Bylgja síður glæsileg. Við náðum svo að vera í veislunni til kl 1 um nóttina því litli stubbur bara svaf og lét hljómsveitina ekki trufla sig við þá iðju. Vona að engum hafi verið misboðið... en það var bara svo gaman og eins og ég segi, hann bara svaf :)

Næsta mál á dagskrá hjá okkur er svo skírn á sunnudaginn næstkomandi. Hver veit nema nafnið hans rati svo á þessa síðu síðar þann sama dag svo nú er um að gera að vera á Refresh takkanum eftir klukkan 2 á sunnudaginn þ.e. fyrir hina forvitnu... Annars hafa vinir og vandamenn verið dugleg að koma með tillögur að nafni fyrir okkur, hver veit nema að það hafi skilað árangri...

Engar fleiri heitar fréttir héðan í bili en ég vil endilega þakka allar góðu og fallegu kveðjurnar sem við höfum fengið undanfarnar vikur
- Mússý múss

Posted by ÞóreyArna at 12:15 EH