júní 28, 2006

3ja ára

Sælt veri fólkið

Í gær átti Elma Hlín afmæli og í tilefni af því var pylsupartý með bleikri barbapabba köku í eftirrétt. Takk allir fyrir komuna og stúlkuna okkar. Hún var alsæl með þetta og var bara ekkert á því í morgun að afmælið hennar væri búið.

Nú, hvað er annað í fréttum?
Jú, það er helst í fréttum að íbúðin okkar hefur enn ekki selst. Mikið væri nú óskandi að það færi að gerast eitthvað í þeim málum.

Um helgina fórum við á svona míní-ættarmót hjá systkinum mömmu. Það var haldið í Árdal í Borgarfirði. Það var mjög gaman og börnin voru úti að leika sér út í eitt. Veit ekki hvað það var oft rólað út í geim :o)

Auðvita fórum við í sauðburðinn og einn daginn tókum við á móti fimmtudagsmeðlimun í sveitinni. Það má finna hlekk á myndirnar hér að neðan.

Við fórum í sumarbústað á Bjarteyjarsand í maí með Óla, Sirrý, Bjarna, Bylgju og svo kom Eiríku til okkar á laugardeginum. Það er alveg magnað hvað maður étur alltaf óhóflega í svona ferðum. Auk þess að borða þá spiluðum við fullt, fullt, fullt, fórum út í gönguferð og lékum með bensín-bílana. Þetta var hin ánægjulegasta helgi, alltaf gott að fara í sumarbústað.

Þetta sumar er mjög ólíkt síðasta sumri þar sem næstum allar helgar voru tileinkaðar brúðkaupum já eða gæsunum og steggjunum. Við erum bara búin að fara í eitt brúðkaup þetta sumarið og okkur hafa ekki borist boð í fleiri. Þá verður ekki eins mikið um ferðalög og hefur jafnan verið. Þó er ein Akureyrarferð á dagskrá í júlí og þá er kannski ágætt að muna eftir skýrslunni frá ljósunni svona ef....

Nú ætti að vera mánuður þar til við fáum Helluvaðið afhennt. Það á alla vega að gerast í júlí og við gerum ráð fyrir að það verði í lok júlí. Annars gæti þetta farið svo að við flytjum úr Hraunbænum, krössum í Hreiðrinu í eina nótt og förum svo í Helluvaðið. Sjáum til í hvaða röð við endum á að gera þetta. Ein af okkur sem vorum settar sama dag ( dreifðum okkur þó eitthvað eftir 20. vikna sónarinn ) var sett í keisara í gær en það lítur allt vel út í dag. Til hamingju Inga Hrönn með stúlkuna þína. En þetta var áminning um að það getur allt gerst og í framhaldi af því hef ég velt því oftar fyrir mér í dag en undanfarið hvort ég ætti að fara að þvo barnafötin. Ég er búin að ná í þau og segja Valgeiri og Sóleyju Láru hvar þau eru svona ef til þess kæmi að það þyrfti að þvo þau í skyndi. Ekki það að ég eigi neina von á því, þetta er svoddan katalóg meðganga og allt gott um það að segja. Nú síðast var barnið búið að snúa sé í höfuðstöðu og þá er bara að bíða eftir að það skorði sig. Það var nú eiginlega í fyrsta skipti í gær sem ég fann eitthvað fyrir þessari óléttu því ég get ekki neitað því að ég var pínu þreytt eftir alla útiveruna um helgina, afmælisundirbúning fram á kvöld á sunnudeginum og mánudeginum sem og kaffihúsabrölt inn á milli atriða á mánudagskvöldinu. En ég hef fulla trú á að það lagist þegar ég er búin að bæta mér upp svefnmissinn.

Það er nú svo sem ekki frá fleiru að segja í bili. Ég ætla ekki að lofa bloggfærslu fyrir þessa stóru atburði sem munu eiga sér stað á næstu vikum því ef ég held uppteknum hætti þá er ekki von á neinu hér næstu 2 mánuðina :o) en hver veit.... Kannski mun ég setjast oftar fyrir frama tölvuna hér heima þegar ég hægi á mér í vinnunni seinni partinn í júlí, kannski...

Og þá eru það hlekkir á nýjustu myndirnar en eins og glöggir gestir síðunnar þá hefur verið skipt um albúm og tekið örlítið til

Haukur Atli Hörpu- og Nonna sonur
Sauðburður
Bjarteyjarsandur
Heimsókn í Kirkjuteig
Maímyndir
Júnímyndir
Afmæli Elmu Hlínar

Posted by ÞóreyArna at 10:14 EH