Þetta er nú ekki hægt.... það er bara ekkert lífsmark hér svo mánuðum skipti. Og alltaf heiti ég nú sjálfri mér því að láta ekki líða svona langt þar til við látum heyra í okkur á ný á þessum vetvangi. En alltaf skal þetta gerast og nú meira að segja líða rúmir 2 mánuðir án nokkurrar færslu. Þetta stafar ekki af því að við séum ekki að gera neitt spennandi og höfum þar af leiðandi ekki frá neinu að segja heldur þeirri einföldu staðreynd að ég nenni ekki að setjast fyrir framan tölvuna þegar heim er komið.
En nú skal bætt þar úr.
Við erum búin að selja trukkinn og það var vissulega ákveðin sorgardagur í okkar lífi. Þetta var hins vegar ákveðið þegar nýja húsnæðið var keypt. Í staðinn höfum við nú keypt okkur Subaru Legacy - Outback, hann er sjálfsagt ágætur greyið, ég á bara eftir að tengjast honum svona tilfinningalegum böndum ennþá. Já ég veit... þið þurfið ekkert að segja... bilun!!
Hvernig haldiði að þetta verð þá þegar við seljum íbúðina? Það væri hins vegar óskandi að sú sala gangi jafn fljótt og vel fyrir sig og salan á bílnum en hann fór á sölu á föstudegi og það var gengið frá sölunni á mánudeginum. Íbúðin fór á sölu í dag og nú er bara að hafa fingur í kross.
Ég heyrði í lóunni í fyrsta skipti þetta vorið í morgun og fannst það óneitanlega frekar súrealískt að vaða snjóinn og gleðjast í hjartanu yfir þessum vorboða.
Í þessum pikkuðu orðum erum við að horfa á þátt á RÚV sem heitir Jörðin og er stórkostlega flottur þáttur. Það eru svo flottar tökur og svo merkilegt allt saman, núna er t.d. verið að sýna frá fuglum sem gera hreiðrin sín úr munnvatni og það tekur þá mánuð að gera þau, eftir á líta þau út eins og hvítt plast. Menn koma svo og taka hreiðrin og það er gerð úr þeim súpa, þau eru þyngdar sinnar virði í silfri. Merkilegt nokk!!
Eins og sum ykkar vita hef ég haft þrálátt kvef frá því í janúar og mínir nánustu og vinnufélagarnir eru alveg búin að fá nett nóg af mér og hóstanum mínum. Nú er hins vegar komið á daginn að ég á 3 og 1/2 mánuð eftir af þessu enn. Þetta eru víst slímhimnubólgur í kinnbeinsholum og bakflæði sem valda og flokkast í mínu tilfelli undir meðgöngukvilla. Betra en margt annað :o) og bara þeim mun meira til að hlakka til þegar barnið fæðist. Ég segi barnið því við vitum ekki hvort kynið er en Elma Hlín er nú alveg með þetta á hreinu, þetta er stelpa og ekkert annað í boði. Hún er líka með stelpu í sinni bumbu svo það verður nóg að gera hjá okkur þegar kemur að þessum fæðingum. Hennar barn getur reyndar fæðst og farið inn aftur bara eftir því sem hentar. Og hún kemur stundum og flettir upp um mig, "nær" í barnið, heldur aðeins á því og kyssir það og setur það svo aftur á sinn stað. Af óléttunni er annars bara gott að frétta og það var helst núna um páskana sem bumban fór að skríða fram. Það eitt og sér, hvað þessi meðganga og stærðin/smæðin á kúlunni eru eins og síðast, geta svo sem rennt stoðum undir það að þetta sé stelpa en hvort það sé eitthvað að marka á svo eftir að koma í ljós.
Við vorum fyrir norðan um páskana og Valgeir setti upp myndavélakerfi í fjárhúsunum. Það er ótrúlega flott og á örugglega eftir að koma sér vel á sauðburði. Það sparar jú fjárhúsferðir á nóttunni að kíkja bara á sjónvarpið og ef ekkert er um að vera þá er hægt að leggja sig aftur. Hver myndavél nær einum garða og krónum sitthvoru megin við hann. Nú er bara að bíða og sjá hvort það verði einhver ávinningur af þessu.
Svo ein saga af Elmu Hlín í lokin. Hún fór í fyrsta sinn í leikhús þegar við fórum að sjá uppsetningu kórs MA og kórs VMA á Jesús Kristur Súperstjarna. Hún lifði sig alveg inn í sýninguna og hafði gaman af enda mikið um tónlist og mikið að gerast á sviðinu. Í hléinu fórum við svo fram og röltum aðeins um, þar gekk fram hjá okkur strákur og Elma Hlín spurði mig hvað hann héti. Ég svarði sem satt var að ég vissi það ekki en hann heyrði til okkar og sagðist heita Gísli. Svo ég sagði við Elmu Hlín að hann héti Gísli. Hún fór að flissa af þessum kjánaskap í mér, fannst mamma sín frekar skrítin að láta sér detta þessi vitleysu í hug og sagði við mig: Nei mamma hann heitir ekki gRísli, hann er ekki svín :o)
Ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili en læt hér fylgja með myndalista.
Gleðilegt sumar öll sömul.
Febrúarmyndir
Innflutningspartý hjá Maríu Helen
Elfa Dís 6 ára
Akureyri
Jesús Kristur Súperstjarna
Síðasta dagurinn í íþróttaskólanum
30 ára Dóri og Arna
Sumardagurinn fyrsti