Það hefur mikið gengið á hér á bæ síðan við létum heyra frá okkur síðast og skal nú stiklað á stóru.
Við höfum fest kaup á nýju húsnæði, nánar tiltekið í Helluvaði sem er í Norðlingaholti. Við erum ekki að svíkja málsstaðinn því þetta er jú í 110 Reykjavík, sem sagt innan Árbæjarins :o) Það verður þó ekki afhent fyrr en í júlí en við erum búin að fara um eins og stormsveipur og ganga frá öllum innréttingum, breytingum og þess háttar, nema gólfefnum. Við vitum hvað við viljum í þeim efnum, það á bara eftir að velja það formlega.
Þá tókum við á móti gestum þann 3. febrúar þegar undirrituð náði þeim merka áfanga að verða þrítug. Við vonum að það hafi verið ágætasta skemmtun alla vega voru lætin nóg til þess að löggan væri kölluð á staðinn….. en það var nú bara fyndið.
Í kortinu frá mömmu og pabba var fæðingarsaga mín og ég las hana fyrir gestina. Og fyrst það hafði náðst svona gott hljóð meðal gestanna þá ákvað Freyr að nota tækifæri og flutti þennan skemmtilega brag.
Sagan hún byrjar stjötí´og fimm,
sumar að koma, nóttin var dimm.
Í myrkrinu þar
margur þar var
af metnað´að stunda sitt trimm.
Með vetri og hausti varð svo ljóst
að vart gátu hjúin lengur þóst.
Magi var mjór,
nú mikill og stór.
Stálmuð´og stækkuðu brjóst
76 kom og kúlan tók harðna
karl nú vænti síns Jóns eða Bjarna.
En febrúar þriðja,
fæddist þeim gyðja.
Nú fönguleg, Þórey mín Arna.
Ljóst er að stúlkan var lán hið mesta
Ljómandi strax náði´að heilla vel flesta.
Og hér í kvöld
í vina fjöld,
hún er elskuð og dáð meðal gesta.
Tíminn er undur og gengur nú aftur,
enn er pískrað og enn malar kjaftur.
Þú getur þóst
en stækkandi brjóst
starir á annar hver raftur.
Og þar með var það orðið opinbert :o)
Við eigum von á hinum nýja fjölskyldumeðlimi 5. ágúst.
Reyndar hef ég aldrei vitað nokkrar tvær konur vænta sín sama dag en nú þekki ég þrjár aðrar sem settar eru þennan mæta dag, þetta eru þær Sólrún frá Staðarbakka og systurnar Inga Hrönn og Harpa frá Kjörseyri. Til hamingju stelpur. Það verður spennandi að vita hvort við hittum allar á sama daginn þegar þar að kemur.
Annars berast okkur endalausar óléttufréttir, sem er auðvita hið besta mál. T.d. eiga Róbert og Guðný von á barni þremur vikum á undan okkur. Meðgangan þar á bæ gengur því miður ekki jafn átakalaust og hér hjá okkur en vonandi fer þetta þó allt að lagast hjá þeim. Já, þetta er mjög átakalaus laus meðganga það sem af er og það var bara ákveðinn léttir að fara í sónarinn og sjá litla krílið á hreyfingu. Það lætur alla vega lítið fyrir sér fara, enn sem komið er... þó svo að ég sé farin að greina einstaka spark.
Svo er Valgeir að fara á enn eina ráðstefnuna til Ameríku, í Orlando að þessu sinni en þangað hefur hann ekki komið. Hann fer ásamt einum vinnufélaga sínum og við, spússur þeirra, vorum að spá í að fara með en þar sem hin kemst ekki þá lét ég það eiga sig að fara loksins til hennar Ammeríku. Það kemur bara að því síðar.
Eigum við ekki að segja þetta gott í bili en fyrir þá sem enn hafa tíma til að hanga á netinu þá eru hér hlekkir á nokkrar nýjar myndir.
Janúarmyndir
Afmæli og útskrift Þóreyjar Örnu
Afmæli Arnars og Bergs
Hilmir Rafn í heimsókn