desember 23, 2005

Jólablogg, ekki jólaglögg

Svona áður en lengra er haldið þá var þetta blogg samið þann 20. des en sem sagt ekki sett inn fyrr en nú...

Hér á bæ eru svona flest allt að vera tilbúið fyrir norðurför þar sem við höldum jólin okkar að vanda.
- jólakort: checked
- jólagjafir: checked
- pakka inn: checked

Þetta er nú svona það helsta er það ekki, ef ekki vinsamlegast látið mig vita sem ALLRA, ALLRA fyrst svo ég geti reynt að kippa því í lag. Ekki svo að skilja að ég sé neitt stressuð eða almennt eitthvað á límingunum yfir þessum jólum. Hlakka bara til. Ennþá eru þó nokkrir smærri hlutir sem á eftir að klára en hey, það er nú bara 20. desember og við förum ekki norður fyrr en 23. desember. Sem mér finnst reyndar frekar skrítið, hef aldrei komið heim svona seint fyrir jólin en það þýðir ekkert að væla yfir því.

Jólasveinarnir hafa komið hér einn af öðrum og allir færandi hendi við mikinn fögnuð Elmu Hlínar. Við fórum á jólaball í kirkjunni sem var mjög gaman en það var eitt sem ég lét fara í taugarnar á mér, jólasveinarnir komu með nammi handa börnunum. Það fannst mér ekki við hæfi. Jólasveinninn sem kom hinsvegar á leikskólann kom með mun betri gjafir, hann færði börnunum jólatannbursta og tannkrem. Við Valgeir vorum reyndar ógurlega spæld þegar við komumst að því að foreldrar eru ekki með á jólaballinu á leikskólanum en sem betur fer þá er Sigga leikskólastjóri dugleg að setja inn myndir sem teknar eru af börnunum og jólaballið var komið inn samdægurs.

Elma Hlín er syngjandi nánast allan daginn og það heitasta í dag eru auðvita jólalögin. Þá gerir hún mikið af því að semja eigin texta :o)
Þær sögðu okkur frá því um daginn í leikskólanum að hún spilar oft á borðin og þykist vera að spila á píanó. Og um daginn sat hún á stól frá sér inni á baði, trommaði á ruslafötuna, hallaði sér pínu til hliðar og söng í auka-klósettrúllu-stadíf. Ekki veit ég hvaðan hún hefur lært þetta.

Svo var það í byrjun desember sem ég fékk að vita að ég hefði náð þessu blessaða síðasta prófi mínu og ég ljómaði eins og sól í heiði í langan tíma á eftir. Þið ykkar sem voruð að halda ofan í ykkur andanum..... sorry að ég lét ekki vita fyrr.

Það eru komnar nokkrar myndir inn í desember albúmið, ég hef fulla trú á að þeim eigi eftir að fjölga :o)

Líkurnar á því að við látum heyra frá okkur aftur hér fyrir jól eru hverfandi svo ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum gleði og friðar á jólunum og taumlausrar hamingju héðan í frá.

Jólaknús frá jólamús

Posted by ÞóreyArna at 02:50 EH