Við nýttum okkur aldeilis góða veðrið á 17. júní og skelltum okkur í Nauthólsvíkina um kl 10 og vorum þar að spóka okkur fram yfir hádegi. Þá var Valgeir búinn að fá nóg af letilífinu og við ætluðum að fara niður í bæ en Elma Hlín sofnaði undir eins í bílnum svo við fórum bara heim að pakka niður og seinni partinn fórum við á Þingvelli, Kaldadal niður í Húsafell og svo Grjóthálsinn að Holtavörðuheiðinni og enduðum á Bálkastöðum. Á laugardeginum fórum við svo í sund á Stykkishólmi og hittum Kristrúnu og Agga eftir sundið. Við fórum í göngutúr um bæinn og ákvaðum svo að líta eftir tjaldsvæði í Berserkjahrauni. Við vissum ekkert hvar við áttum að vera að leita en viti menn, við fundum alveg æðislegan stað og sólin lék við hvern sinn sólargeisla. Það var ekki alveg eins spennandi veðrið í morgun og fljótlega fór að væta svo við héldum heim á leið. Þegar heim var komið var Elma Hlín orðin lasin, vonandi nær hún að hrista það af sér fljótlega því það eru jú bara 8 dagar í 2ja ára afmælið!!!!
Var að setja inn myndir frá helginni
Var að henda inn myndum úr Þórsmörk og frá því að Sonja var gæsuð. Það var rosalega góður dagur og veðrið sýndi sínar bestu hliðar. Við biðum eftir henni í Laugarvatnshelli og þar fórum við í smá leiki. Þaðan fórum við á Þingvelli í smá nesti og svo var keyrt að Keili og þrammað þar upp og útsýnisins notið í skamma stund. Brunuðum í Bláa lónið og gæsin fór í nudd eins og við flestar en við bara hjá hverri annarri en ekki þar til gerðum nuddurum :o)
Eftir það fórum við heim til Jónu Rósu og til að toppa þema dagsins, mexicó þá var eingöngu mexicanskur matur á borðum, þvílíkt góður. Á eftir voru svo pakkar og meiri skemmtun. Mjög góður dagur.... vonandi fannst bara Sonju það líka.
Framundan er svo brúðkaup Róberts og Guðnýjar um næstu helgi. Meira af því síðar.