maí 31, 2005

Nýjar myndir

Það er búið að setja inn myndir en þær eru smá "mis" þ.e. það eru nokkrar myndir frá því í apríl, t.d. heimsóknin til Vignis og Lilju. Svo er restin af myndunum ekki í réttri röð, svo ekki láta ykkur bregða :o)

Annars er það helst í fréttum að við Valgeir fórum í Þórsmörk um helgina en Elma Hlín í sveitina, núna er allt afa í sveitinni, afi á traktor, afi á fjórhjól, alltaf að fara til afa í sveitinni og svo framvegis.

Þessi Þórsmerkurferð var hin besta, við fórum með hjólin og bárum þau talsvert um.... upp og niður fjöll og eitthvað svoleiðis en enduðum svo á að hjóla eins langt inneftir og hægt var með góðu móti, löbbuðum þar upp í fjallshlíð og sofnuðum. Það er svo gott að sofa svona úti í náttúrunni. Til að toppa þennan úti svefn þá sváfum við á pallinum um nóttina sem var bara kósý.
Óli, Sirrý, Andy og Candy voru líka í mörkinni og við áttum gott laugardagskvöld í rigningunni.

Þar til í júní-blogginu
Hafið það sem allra best

Posted by ÞóreyArna at 02:34 EH

maí 02, 2005

Kominn maí....aftur!!

Halló halló

Hvað erum við nú búin að bralla síðan síðast?
Það er eitt og annað.... en ég bara man ekki hvað!!!

Eina helgi vorum við eins og jójó á milli Hrútó og Reykjavíkur en við fórum norður að hjálpa pabba að smíða nýjar grindur í fjárhúsin en skelltum okkur suður á árshátíð Íe svona í millitíðinni. Sú stutta hélt uppteknum hætti og skríkti og hló þegar farið var í fjárhúsin og svo bætti hún einu á afrekalistann því hún fór loksins á hestbak. Síðast þegar það var reynt þá var hún bara smeyk og vildi það ekki þegar á hólminn var komið en nú var hún búin að tala mikið um að "sitja boggogobb já" svo það var ekki hægt að skorast undan :o)
Það gekk svona og svona en eftir að ég settist á bak þá var þetta allt annað og miklu skemmtilegra.

Við héldum smá morgunverðarboð hér 16. apríl og Kristjana og Sonja komu með fjölskyldur sínar. Það var góður hópur og alveg gullfalleg börn, en ekki hvað...

Svo hélt mamma upp á afmælið sitt sem í raun var 4. apríl þann 16. apríl. Við byrjuðum á að fara í hávaðaroki í Þorlákshöfn og þar var gengið um og helstu staðir skoðaðir auk þess að fara í B götu 17 og rifja upp gamlar minningar sem við flest áttum frá því húsi. En afi og amma byggðu það og þar ólust þau upp eftir að þau fluttu frá Akureyri. Í Þorlákshöfn enduðum við svo á að fara í reiðhöllina og börnin hlupu um og skemmtu sér og öðrum. Þaðan var svo farið í Hveragerði í kaffi og nokkra leiki. Þetta heppnaðist mjög vel.

Svo erum við Valgeir alltaf að verða duglegri og duglegri að hjóla enda veitti ekki af að reyna að koma sér í form fyrir komandi 2 vikur en Valgeir stefnir á sigur með liðið sitt í Hjólað í vinnuna átakinu. Sjáum til hvað gerist en það borgar sig alla vega að hjóla alla daga og helst að taka auka króka til að eiga séns. Meira um það síðar.

Árshátíð Gutenberg var haldin í Kaupmannahöfn þetta árið svo nú gat Halli ekki lengur skorast undan því að fara þangað og viti menn, hann var bara nokkuð ánægður með þetta og að sjálfsögðu Jóa líka.

Róbert og Guðný eru langt komin með undirbúning fyrir brúðkaupið sitt. Þau eru svo dugleg að föndra fyrir það og gera sjálf. Ég er farin að hlakka mikið til að sjá hvernig þetta kemur út hjá þeim, ég veit að það verður flott.

Af Elmu Hlín er það annars að frétta að hún er svolítið rauð í öðru auganu svo við fórum til doksa í dag og hann lét okkur fá sýklakrem þar sem það var komin bólga í slímhimnuna, en það er sem betur fer ekkert að erta hana. Hún var heima í dag þar sem hún fékk vott af ælupest í gær og í dag er hún búin að vera voða lítil í sér og unir sér lítið ein. Það verður vonandi allt orðið gott á morgun svo hún geti farið til Sillu dagmömmu. Annars er gaman að segja frá því að þetta að sofa ein í herbergi gengur eins og í sögu. Þetta var strax svo spennandi að hún vildi ólm sofa þar og það hefur ekkert komið bakslag í það. Við lesum yfirleitt smá fyrir hana og segjum svo bara góða nótt og hún er alveg sátt við það að við förum fram og hún sofni ein. Enda var hún ekki vön öðru þegar hún svaf inni hjá okkur. Við erum voða ánægð með þetta hjá litlu snúllunni okkar. Svo er hún auðvita alltaf að vera duglegri og duglegri að tala og talar mikið eins og sönnum kvennmanni sæmir. Þá er hún líka farin að þekkja stafinn sinn, við komumst bara að þessu um daginn þegar Valgeir var með nokkra stafi og spurði hvar er stafurinn E fyrir Elma Hlín og hún benti á hann.... við vissum ekki að hún kynni þetta né heldur hver kenndi henni þetta, sá hinn sami er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram!!
Svo tókst Valeyju Söru að kenna henni að gefa "þumalfingur upp".
Og ein enn montsaga...Í dag vorum við að mála og ég setti gulan lit í pensilinn og sagði að þessi væri eins og sólin og þá vildi hún mála sól og alveg upp á eigin spítur þá málaði hún sól (auðvita passlega abstrakt) í efra, vinstra hornið.

Framundan eru svo meiri hjólreiðar, 10 ára útskriftarafmæli hjá mér frá ML ( ekki að það séu 10 ár síðan ég útskrifaðist....) sem gæti orðið hin mesta skemmtun og svo auðvita að fara í sauðburðinn, það eru nú þegar komin nokkur lömb og Elma Hlín er farin að tala um að knúsa me.

Aprílmyndir

Túrílú,
Þórey Arna

Posted by ÞóreyArna at 09:58 EH