Enn einu sinni er þetta mánaðarlega komið.... já að skella inn smá færslu hér.
Af okkur er allt ágætt að frétta, ekki það að ég ligg reyndar uppi í rúmi eftir frekar vonda magakveislu (bara slæmir magaverkir) frá því í gær en ég er öll að braggast og fer örugglega í vinnuna á eftir.
Við fórum norður um páskana og það fór vel um okkur. Elma Hlín fór út að leika alla dagana og iðulega oftar en einu sinni. Hún var ýmist að moka úti, rölta um, vera í fjárhúsunum eða suða um að fá að sjá hestana. Henni virtist líka þetta mjög vel því þegar við fórum t.d. í fjárhúsin þá skríkti hún af gleði, svona eins og þegar við förum í sund. Hún rölti galvösk inn á garðana þegar þeir voru heylausir og spjallaði og spjallaði við alla nærstadda. Svo prófuðum við að gefa kindunum köggla og það fannst henni pínu skrítið, hún fór svo með einn að sýna afa sínum, svona ef hann skildi nú aldrei hafa séð svona. Þá sagði hann henni að hann hefði nú stundum borðað svona en hann væri hættur því núna, þá leit hún augunum á mig og setti þennan upp í sig.
Hún var hins vegar ekki alveg eins brött í kringum hrossin, þau voru vissulega voða spennandi og hún bað um að fá að sjá bogogobb í tíma og ótíma en þegar þeir voru komnir of nálægt fór um hana og hún vildi ekki setjast á bak.
Svo er líka gaman að segja frá því að Elma Hlín sofnað í fyrsta skipti í sínu herbergi í gær, Valgeir náði í rúm sem við áttum í geymslunni og setti inn til hennar því við ætluðm svona að fara að venja hana við þetta núna í apríl en þetta var svo spennandi að hún fór bara að sofa þar. Um kl hálf þrjú vaknaði hún svo og þar sem hún kemst sjálf fram úr rúminu þá rölti hún fram áður en við heyrðum í henni. Þá tókum við hana upp í en hún var nú ekki alveg á því að fara að sofa strax aftur, vildi t.d. fá að borða og varð ekki róleg fyrr en hún hafði borðað nokkra Cheerios hringi.
Svona gengur lífið fyrir sig hjá okkur, bið að heilsa að sinni.