Alla vega það sem af er öldinni....
Valgeir kom með flensuna inn á heimilið og lá í 5 daga, eftir 4 daga vorkenndi ég honum svo mikið að ég ákvað að taka eitthvað af þessu á mig og það sér ekki fyrir endan á þessu hjá mér. Ég er búin að vera veik síðan á sunnudagskvöldið og í gærkvöld var Elma Hlín líka komin með hita og hor. En við ætlum í sveitasæluna um helgina til að jafna okkur og auðvita til að sjá nýja hundinn hana Týru. Elma Hlín er meira að segja búin að læra að segja það, Týa. Svo er hún líka farin að svara þegar hún er spurð hvað hún heiti en því er ekki að neita að það hljómar mjög líkt og afmæli þ.e. eins og hún ber þessi orð fram. Munurinn liggur helst í A og E... og svo mismikilli áherslu á H eftir því hvað hún vandar sig mikið. Í morgun vorum við að lesa í 1000 fyrstu orðin og hún kom mér enn á óvart með að þekkja hluti sem ég minnist ekki að við höfum verið að kenna henni, eins og t.d. hjólbörur.
Annars var ég að setja inn myndir af dömunni fyrir áhugasama eins og t.d. móðursystir á Akureyri sem verður í Danaveldi eftir nokkra daga!!!
Góðar stundir
Halló allir saman
Það er nú meira hvað maður er latur við að setja inn nokkrar línur hér. En það er eitt og annað sem hefur á daga okkar drifið síðan síðast. Er þar helst að nefna að ég er komin með vinnu og er í einu fagi í skólanum, bíllinn okkar er kominn og til að toppa bílafréttirnar (fyrir þá sem ekki vita allt um málið...) þá kom á daginn að við erum ekki með próf á hann. Eins og við vorum búin að hlakka mikið til. Svo Valgeir er byrjaður í vörubílanámi og ég fer í það þegar hann er búinn. Það tekur 4 helgar og ég vildi ekki fara í það um leið svo að Elma Hlín myndi nú hitta foreldra sína aðeins. Bíllinn fór í vist í sveitina svo hann fengi einhverja hreyfingu.
Af Elmu Hlín er allt voða gott að frétta fyrir utan það að hún fékk hita í dag og verðu heima á morgun, vonandi jafnar hún sig fljótt. Hún fékk væga flensu í þar síðust viku svo ég er með fingur í kross og vona að þetta sé bara eitthvað smá skot. Annars er hún voða dugleg að læra ný orð og er síbabblandi. Hún spyr út í eitt hvað þetta og hitt sé og endurtekur sumt af því. Henni finnst ennþá voða gaman af bókum og þegar Sóley Lára sækir hana til Sillu dagmömmu og spyr hana hvað hún vilji gera þá er svarið undantekningarlaust: bok ( hún ber það ekki alveg rétt fram enn svo þetta var ekki ásláttarvilla :) Þegar hún er spurð hvað hún vilji borða þá er það yfirleitt ots ( ísl. ost ) eða egg. Þegar einhver gegnur um þá heldur hún alltaf að það sé pabbi sinn. Og um daginn átti hún voða gott move, hún segir til þegar hún þarf að kúk.... og við erum aðeins að æfa hana í að vera bleijulausa og báðum hana um að láta okkur vita ef hún þyrfti að pissa. Svo kom að því og hún hljóp með pabba sínum inn á bað og var tilbúin að pissa í koppinn en núna vildi hún gera þetta á nýjan hátt... eins og pabbi svo hún stóð, lyfti upp samfellunni og sveigði mjaðmirnar fram. Pabbi hennar hló mikið og hátt að þessum tilburðum. Sem betur fer kom engin buna :)
Í dag var hún að hjálpa mér við þvottinn, bar hann inn í stofu fyrir mig en á meðan ég brá mér í símann bar hún hann allan aftur inn í þvottahús og tróð honum inn í þvottavélina. Hún er mjög dugleg í hússtörfunum þessi elska en bara spurning hvað það endist lengi!!!
Um daginn fórum við norður og skelltum okkur í fjárhúsin, þar arkaði hún um eins og herforingi og gaf ánum brauð og hey en var um leið voða upptekin af því að kindurnar voru að pissa og kúka!!!! Það er loksins að koma hundur á Bálkastaði og það verður spennandi að fylgjast með samskiptum Elmu Hlínar og tíkarinnar því sú stutta hefur alltaf jafn gaman að Malínu og kallar í hana ótt og títt, eltir hana og knúsar og þegar við göngum upp stigana þá er hún farin að spyrja um hana.
Silla dagmamma var að segja mér frá ýmsum brögðum sem Elma Hlín beitir hjá henni, t.d. ef hún fær ekki að horfa á Lalla í sjónvarpinu (Stubbana) þá hleypur hún að útidyrahurðinni og ákallar foreldra sína, Aggis og snudduna. Þá er ein dúkka sem enginn má snerta nema hún og til að tryggja það þá heimtar hún að dúkkan fari með henni og Aggis að sofa, en hún sefur enn í ca 2 klst á dag. Og eins og fram kom áðan þá sækir Sóley Lára hana og fer með hana heim, þar dunda þær frænkur sér þar til við Valgeir komum. Elma Hlín er svo rannsóknardýr hjá Sóleyju Láru en hún er í kúrs sem heitir máltaka barna og þar þurfti hún að hafa ákveðið barn sem viðfangsefni svo þetta lá beint við.
Elma Hlín fór í 18 mánaðaskoðun í byrjun janúar og þá var hún orðin 9,5 kg og 82 cm. Ég er bara viss um að hún hefur bætt nokkrum ( alla vega einum ) við síðan þá því allt í einu voru nokkrar buxur orðnar of stuttar. Sem er gott mál því ég held enn í vonina um að hún verði hærri en ég.....
Þó svo að ég sé ekki dugleg að skrifa hér inn þá læt ég reglulega inn myndir fyrir þá sem fylgjast með úr fjarska
Jæja, nú er kominn sofutími
ZZzzZZzz