Sælt veri fólkið
Það fór þó aldrei svo að ég léti ekki heyra frá mér fyrir jól!!
Nú erum við á Bálkastöðum og veðrið er bara skaplegt, það var reyndar hríð í morgun og það var ekki laust við að það væri spennandi fyrir okkur "ungviðið". Rétt eftir að Birkir fór á Borðeyri um hálf ellefu þá lagaðist þetta og nú koma él öðru hvoru, þó er búið að afboða messu sem átti að vera kl 18:00.
Valgeir, Sóley Lára og Valey Sara fóru á smá rúnt áðan út í Staðarskála og í Hrútatungu sem er svo sem ekki í frásögu færandi nema að þeim tókst að pikkfesta sig í heimtröðinni í Hrútatungu og það varð að ná í dráttavél til að losa þau. Þetta var jafnvel enn meira spennandi en hríðin. Og pælið í því, þetta var bara í annað sinn sem við festum Bimmann!!
Við systurnar erum farnar í hárgreiðsluleik fyrir jólin, Sóley Lára leikur hárgreiðslumeistarann og við Valey Sara leikum viðskiptavini, mjög þægilegt fyrir okkur Valeyju Söru :)
Elma Hlín er að fá sér jólablund og ætlar jafnvel út að leika með afa í snjónum á eftir.
Þetta árið fékk Valgeir möndluna sem var kærkomin breyting á því að Valey Sara fái hana alltaf. Ég er ekkert bitur, ekki misskilja mig!!!
Í gær fórum við í fjárhúsin þegar var verið að setja restina af hrútunum í ( hjá ánum.... ) Það var þokkalega frosið í öllum vatnslögnum í hluta fjárhúsanna enda fór frostið mest í 22,6 í gær svo við fórum í að redda vatninu. Valgeir og pabbi fóru svo út í fjárhús rétt eftir miðnætti í gær og létu rennsli á vatnið til að varna því að það frysi aftur. Á meðan vorum við hin á blístri inni í eldhúsi eftir að borða humar, grafin silung, grafið fille, osta og ávöxtinn durian sem stóð ekki alveg undir væntingum en allt hitt gerði það og gott betur, jólaOFátið var formlega hafið.
Jæja er ekki best að segja þetta gott í bili.
Ég óska ykkur bara enn á ný gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.
Hátíðarkveðja,
Þórey Arna
- sem ætlar að kíkja "bara einu sinni enn" á pakkana og káfa smá á þeim en ekki segja Valeyju Söru frá því, hún tapar sér
Jæja gott fólk, ég vona að desember leggist vel í ykkur og að jólastressið nái ekki tökum á ykkur. Það hefur alla vega ekki komið við hér á bæ, hér er búið að njóta þess að vera ekki á kafi í skólanum eins og venja er orðið heldur bara taka því passlega rólega. T.d. búið að baka nokkrar smákökusortir og þrífa passlega mikið!!! ásamt ýmsu öðru sem búið var að sitja á hakanum í haust. Þá er öll fjölskyldan búin að leggjast í ælupest en með nokkru millibili þó. En allir orðnir hressir núna og farnir að hlakka til að fara á Bálkastaði til að halda jólin hátíðleg.
Ef það heyrist ekki meira frá okkur fyrir jól þá óskum við ykkur öllum, kæru lesendur, nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu.
Jólastrympan,
Þórey Arna