Tja... nú skal ég segja ykkur fréttir...
Elma Hlín er búin að þyngjast um 1 kg síðan í 1 árs skoðuninni sinni og var fyrir 2 vikum heil 8835 gr og orðin 80 cm.
Það er búið að bjóða okkur í 3 brúðkaup næsta sumar, eitt í Reykjavík, eitt á Akureyri og eitt í Færeyjum. Ekki að við séum búin að fá boðskortin ennþá en fólk er greinilega meðvitað um að ekki sé ráð nema í tíma sé tekið.
Róbert og Guðný gifta sig 12. júní, Sonja og Elvar 16. júlí ef ég man rétt og svo ætla Daddi og Bænta (afsakið en þetta er líklega ekki alveg rétt skrifað hjá mér) að gifta sig helgina fyrir Ólafsvöku í Færeyjum og þá verður fimmtudagsklúbbnum smalað þangað, stefnir í góða mætingu og enn betri stemmingu.
Og það er komið enn eitt veðmál í klúbbinn, Dóri tilkynnti um nýtt veðmál en þau Arna Björg eiga von á barni í mars. Bestu hamingjuóskir turtildúfur.
Við fórum á Laugarvatn á laugardaginn var, reyndar ætluðum við að gera gott betur og fara í Miðfell til foreldra Kristjönu en Elma Hlín var komin með hita svo við gerðum ekki eins mikið úr deginum og hefði annars átt að vera. Við hittumst svo bara heima hjá Sonju og Elvari, sem by the way varð þrítugur 11. okt. s.l. og við ásamt Kristjönu kúlustelpu, Frey og öllum barnaskaranum borðuðum saman og áttum góða stund. Við fórum svo aftur í bæinn, lögðum Elmu Hlín í rúmið, tókum á móti Óla Hrafni barnapíu og fórum svo strax aftur á Selfoss í þrítugsafmæli Ara frænda. Þar var samankomið mikið af góðu fólki og góðum mjöð og var það hið besta skemmtun, til hamingju með áfangann frændi sæll.
Elma Hlín var svo hress í gær en fékk hita aftur í dag, mig grunar að það hafi eitthvað með tanntöku að gera því ein augntannastaðsetning er stokkbólgin og það rennur úr henni slefið, það verður líklega komið í ljós í fyrramálið.
Annars fer að líða að því að stelpan þeirra Kristjönu og Freys fari að koma í heiminn, ekki það að ég viti að þetta sé stelpa heldur er Kristjana viss um að þetta sé stelpa svo ég kaupi það bara. Og svo eiga Gaui frændi og Birna líka bráðum að fara á fæðingardeildina, allt að gerast!!!!
Svo er ekki leiðinlegt að segja frá því að ég verð búin í prófunum 2. desember og Valgeir fer á ITForum ráðstefnu í Danaveldi á meðan ég verði í prófunum. Ég var einmitt líka í prófum þegar hann fór á TechEd í USA hér um árið.
Bis nexten Mal.
Þórey Arna