Jú við tórum enn þó svo að svo sé ekki að sjá á þessari blessuðu síðu.... þetta er náttúrulega hrikaleg frammistaða. En til að stikla á stóru yfir það sem hefur á daga okkar drifið síðan síðast þá ber þetta helst:
Við fórum í útilegu 5dk-klúbbsins sem var í Þakgili þetta árið, það er frábær staður rétt aðeins lengra en Vík.
Við skiptum á bíl við mömmu og pabba ( reyndar voru þau í útlöndum á meðan svo þetta var eiginlega bara við Valeyju Söru ) og fórum á norðausturhorn landsins um Verslunarmannahelgina og vikuna þar á eftir. Reyndar vorum við fyrst í 2 nætur á Akureyri í góðu yfirlæti hjá Sonju, Elvari, Örvari Erni og Selmu Hrönn en héldum svo áfram í Ásbyrgi, Þórshöfn, Bakkafjörð, Vopnafjörð, Hellisheiði eystri, Egilsstaði, Kárahnjúka, Atlavík, Jökulsárdal, framhjá Upptyppingum, í Herðubreiðalindir og svo var síðasta nóttin í útilegunni á Mývatni. Þetta var rosa góð ferð og veðrið lék við okkur alla dagana. Á leiðinni til baka í Bálkastaði komum við við á fiskideginum mikla á Dalvík en þar var bæði margt fólk og margir fiskar.
Við vorum svo á Bálkastöðum eitthvað í þeirri viku og héldum svo á ættarmót helgina á eftir, það voru niðjar Sigulaugar langömmu og Hermanns langafa, þ.e. föðurafi og amma mömmu.
Svo kom að því að Elma Hlín færi til dagmömmu. Það var næstum því að Valgeir þyrfti róandi til að byrja með en svo gekk þetta svona líka glimmrandi vel, það var væl fyrstu 2 vikurnar þegar við sögðum bless sem var svo búið þegar dyrunum var lokað. Núna labbar hún bara inn og vinkar okkur og er alveg sátt við Sillu dagmömmu og hin börnin sem eru þar. Hún er reyndar elst og veit víst alveg af því, er t.d. sú eina sem labbar ennþá.
Já þetta með að labba, það byrjaði 23. ágúst þegar hún var búin að borða kvöldmatinn. Þá setti Valgeir hana niður úr stólnum sínum og spurði hvort hún ætlaði að labba til mín og viti menn hún bara gerði það og gott betur, hún stoppaði ekki allt kvöldið og var meira að segja líka að dansa. Þetta voru nú reyndar ekki fyrstu sporin hennar, þau tók hún 15. júli heima hjá Eirík, Amelíu, Berg og Arnari. Þá sneri hún sér við og gekk nokkur skref á eftir mér alveg ein og síðan þá hafði hún tekið nokkrar rispur en alveg óafvitandi, hún þurfti að halda að við héldum í hana. Svo það kom okkur ekki á óvart að þegar hún loksin byrjaði á þessu þá kunni hún þetta alveg upp á 10.
Svo er því við að bæta af dömunni að hún er orðin matargat, það hlaut að koma að því, annars hefði henni ekki kippt í kynið stelpunni. Hún er dugleg að borða hjá dagmömmunni og svo fær hún orðið að borða kvöldmatinn sinn sjálf, það er reyndar æði subbulegt en þess virði. Ég fer bráðum með hana í aukavigtun til að sjá hvort þetta át sé ekki að skila sér.
Nú er ég byrjuð á síðustu önninni minni í skólanum, það er reyndar ekki svo gott að ég verði búin með námið um áramótin heldur á ég þá 2 fög eftir sem ég ætla að skipta niður á 2 næstu annir, þ.e. 1 á næstu vorönn og 1 að ári svo það verður ekki útskrift fyrr en 2006..... well, það líður að því ( Þórey Arna í Pollýönnuleik )
Valgeir er farinn í vinnuna eftir að hafa verið í sumarfríi í 3 vikur í ágúst. Annar er það helst að frétta af honum að hann er illa haldinn af Ford-sýki ( jú og ég pínu... ). Ég held að það sé bara til ein lækning!!!!
Það er hrikalegt að blogga svona sjaldan, þetta verður alltaf svo geggjað langt fyrir vikið og til að reyna að komast hjá því þá skal ég reyna að segja fréttir af okkur aftur fyrir jól:)
Það koma reglulega inn nýjar myndir.
That´s all folk