júní 30, 2004

Loksins eitthvað að gerast hér!!!

Jæja, það er svo löngu kominn tími til að setja inn nýjar fréttir hér. Reyndar hef ég tekið eftir því að tryggir gestir eru búnir að taka eftir nýjum myndum á síðunni án þess að búið sé að blogga um þær en fyrir ykkur hin þá koma linkar á þær hér á eftir.

Það er eitt og annað búið að gerast síðan síðast. T.d. vorum við mæðgurnar í rúmar 2 vikur í sauðburðinum hjá mömmu og pabba í góðu yfirlæti. Ég reyndar skutlaðist suður í eina kvöldstund þegar Halli varð 60 ára þann 27. maí. Þegar við svo komum suður aftur þá rétt höfðum við tíma til að þvo þvott, pakka niður og fara í mini-gæsun fyrir Siggu Maju áður en við héldum til Calpe á Spáni. Við höfðum það voða gott þar í mikilli rólegheita ferð, það var mikið lesið og feðginin tóku sér reglulega sínar síestur. Elma Hlín var alveg að fíla þetta, fannst æði að fara á ströndina og skreið óhrædd út í sjó, mokaði í sandinum og reyndi að stela boltum af nærstöddum. En núna finnst henni mjög gaman að boltum, reynir að henda til okkar og bíður eftir að við rúllum boltanum aftur til hennar. Úti fórum í heimsókn til Evu Rósar á Benidorm en hún var í útskriftaferð þar, það hefur nú ekki mikið breyst þar á 9 árum síðan undirrituð var í sinni útskriftaferð. Við komum heim 17. júní og fórum stuttan rúnt í bæinn, aldrei þessu vant ekki með Óla og Sirrý en náðum samt föstum liðum eins og venjulega t.d. að hitta Steffý og svo hin nýgiftu Hjalla og Möggu Dóru.

Á meðan við vorum úti misstum við af 2 brúðkaupum, Sigga Mæja og Haukur fimmtudagsklúbbsmeðlimir giftu sig og héldu sumarbústaðarpartý þann 5. júní. Kristín frænka hans Valgeirs og Steini giftu sig einnig þann dag og héldu veislu hjá foreldrum hans Steina. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju.

Svo eignuðust Sonja og Elvar dóttur þann 13. júní og hún var skríð þann ágæta dag 27. júní og fékk nafnið Selma Hrönn, mikið hlökkum við til að sjá hana en af myndunum að dæma þá er hún alveg eins og stóri bróðir hann Örvar Ernir.

Eva Rós hélt svo útskrifaveisluna sína með pomp og prakt 19. júní og það var þrusugóð veisla og nú bíðum við bara eftir næstu veislu í ættinni..... brúðkaupsveislu Árna og Jóhönnu sem verður 10. júlí.

Og svo kom að því að Elma Hlín yrði næturlangt í burtu frá okkur, hún fór með Sóleyju Láru og Birki í Bálkastaði á föstudaginn var. Við fórum í dagsferð Þórsmörk með Agga, Albert, Óla og Sirrý á laugardaginn en þá hafði ég ekki komið þangað í 17 ár (Ó MÆ GOD ) en það er svo geggjað fallegt þar að ég ætla ekki að láta líða önnur 17 ár þar til næst, enda er stefnt á Fimmvörðuhálsinn einhvern góðan dag á næstunni ( eins og síðustu 3 sumur... ). Þegar við komum í bæinn þá var brunað í að kjósa og svo haldið í næstu ferð en nú lá leiðin upp að Apavatni í brúðkaupsveislu/partý hjá Hjalla og Möggu Dóru. Það var þrusugóð veisla og engar smá veitingar og þegar liðið var á nóttina héldum við í Bálkastaði til að geta vaknað með afmælisbarninu. Já, hún er sem sagt orðin 1. árs hún Elma Hlín. Reyndar hefði heilsan geta verið betri hjá henni því hún var með hita og kvef litla skottið. En það kom ekki að sök og hún átti góðan dag. Svo var hún í 12 mánaða skoðun áðan og var orðin 7810 gr og heldur áfram að vera í fjaðurvigtinni.

Svo koma hér myndalinkarnir ( eins og þetta sé ekki bara orðið ágætt!!!!)

Sauðburðarmyndir

Calpe

Stúdentsveisla Evu Rósar

Heiðmerkurferð 5tk

Aðalfundur 5dk

Posted by ÞóreyArna at 04:03 EH