apríl 29, 2004

Tilkynning um gamlar myndir og nýjasta nýtt

Bara svona ef þið skilduð ekki hafa tekið eftir því þá eru komnar myndir í apríl albúm.

Við vorum fyrir norðan um páskana og á annan í páskum kom tönn nr 2 í efri góm og þá eru þær samtals orðnar 5. Elma Hlín var hætt að gnísta tönnum en eftir að þessi nýjasta stækkaði þá mundi hún allt í einu eftir þessu aftur og viti menn, nú er hún búin að ná enn betri tökum á þessu og hljóðin eru eftir því ##$%$#$%#$#%$$ Það er eins og hún sér að bryðja grjót!!!!!

Annars er það helst að frétta af Elmu Hlín að líklega er hún byrjuð að segja fyrsta orðið sitt... já ég segi líklega því hún sparar það svolítið.... en orðið er "kis" og þá á hún við kisa. Þetta segir hún stundum þegar hún sér Malínu eða þegar hún sér myndir af köttum. Þetta gerði hún í fyrsta skipti á annan í páskum. Reyndar segir hún mamma og dada í tíma og ótíma en því virðist nú ekki vera beint persónulega til okkar ennþá, það hlýtur að fara að koma að þessu. Svo var hún að herma eftir mér í dag þegar við vorum að leik með hest og ég var að hneggja, það var voða fyndið og í fyrsta sinn sem hún er eitthvað að herma eftir okkur svo ég hafi orðið vör við. Annað nýtt er að nú eru bæði símar og fjarstýringar sett beint að eyranu og haft fyrir síma.

Verkefnið hjá mér gengur vel og við erum svo róleg í tíðinni að við hættum bara um klukkan tvö á daginn, þá koma þau feðginin oft hjólandi til mín og við fáum okkur rúnt um bæinn enda eru við búin að vera voða dugleg að hjóla undanfarið með nýju kerruna. Elmu Hlín líkar veran þar vel, ýmist sefur eða nýtur útsýnisins.

Þyngingarátak Elmu Hlínar virðist ganga vel, hún fer í skoðun í byrjun maí og verður þá vonandi komin yfir 7 kg. Nú er kominn tæpur mánuður síðan hún hætti að súpa á nóttunni og í kjölfar þess þá fór hún að borða meira á daginn og það er smjör eða olía út á allan mat. En það er ekki skrítið að hún sé ekki þung daman því hún er á fullu allan daginn, staðið upp við allt eða í eltingaleik við Malínu (við misjafnar undirtektir meðspilenda....)

Segi þetta gott í bili og minni á apríl myndir.

Posted by ÞóreyArna at 10:09 EH | Comments (1563)