Já, það er loksins komin í tönn í efri góm og það fer sko ekkert á milli mála því það er svo mikið sport að láta gnísta í henni og svo fylgir þessu mikið slef.... Hún fékk háan hita nóttina eftir að tönnin kom og undanfarna 3 daga er hún búin að vera hás en það er allt að koma... þar til hin framtönnin kemur!!!
Það var aldrei búið að setja inn myndir síðan í janúar en hér með er því kippt í lag, janúarmyndir og marsmyndir.
Í síðasta bloggi lofaði ég að láta ykkur vita hvernig hefði verið á 3 Maríum og það var hreint út sagt æði, Kristjana fór á kostum og þeir sem ekki hafa séð gagnrýnina þá er bara að vera í bandi og ég skal senda ykkur hana, það voru stór orð í henni!!!!
Annars er gaman að segja frá því að það eru bara eftir 2 dagar af hefðbundnu námi í skólanum þessa önnina. Svo eru bæði prófin mín 19. apríl en ég er líka í 2 próflausum áföngum. Eftir prófin og fram til 10. maí verð ég að vinna eingöngu í öðrum þessara próflausu áfanga, Stofnun og rekstur fyrirtækja. Það er ekki alveg jafn gaman að segja frá því að Valgeir er hálfnaður með fæðingarorlofið sitt en.... c´est la vie.
Segjum þetta gott í bili.
Jæja, nú er Elma Hlín búin að fara í 8 mánaðaskoðunina og enn er hún svoddan fiður þessi rúsína, ekki nema 6625 gr en er orðin 69,5 cm á lengd. Á mánudaginn, 1. mars, fékk hún svo 3 tönnina sína og hún kom líka í neðri góm. Það er hins vegar orðið æði stutt í framtennurnar í efri góm.
Elma Hlín er alltaf að læra eitthvað nýtt, afi kom í bæinn á föstudaginn var og aðstoðaði hana við að standa upp í rúminu sínu og viti menn, á laugardagsmorguninn stóð hún svo sjálf upp í rúminu sínu, dillaði sér, hló og setti upp nettan prakkarasvip. Síðan þá er hún búin að gera þetta 2 sinnum. Svo er hún líka farin að átta sig á hvað ó, ó þýðir en stundum eru viðfangsefnin bara svo spennandi að það er erfitt að halda sig frá þeim t.d snúrurnar en okkur þykir hún efnileg í snúrulúða eins og pabbi sinn.
Annars er ég farin að hlakka til að fara í leikhúsið á laugardaginn kemur en þá ætlum við Sonja að fara á frumsýningu hjá Kristjönu á einleik sem hún verður með í Borgarleikhúsinu, segi ykkur meira frá því eftir helgi.