Já, þið sem ekki vitið það þá eignuðust Eiríkur og Kristín Amelía strák hálf níu í gærmorgun. Hann var 49,5 cm og rúm 3700 gr og þykir mikið líkur Berg stóra bróður sínum, það er ekki leiðum að líkjast. Okkur var boðið í heimsókn í Hreiðrið í gærkvöld og það var frábært að hitta þau. Ég vil meina að Amelía sé fædd í að eiga börn, þetta var svo ekkert mál hjá henni og ekki að sjá að hún hefði verið að eiga barn 12 klukkustundum áður, sat með fætur í kross og alles.... ég fékk nú bara illt í .... say no more!!!!
Nema hvað, litli hnoðrinn þeirra er yndislegur og var búinn að vera voða rólegur frá því hann fæddist og varla haft fyrir því að opna augun, svo fór hann að mala hjá Valgeiri og það var bara krúttlegt. Hér eru myndir frá því í heimsókninni.
Okkar bestu hamingjuóskir með drenginn kæra fjölskylda.
Nú þarf að fara að endurskipuleggja eitthvað í kotinu því litla daman er byrjuð að hanga í blómum og fartölvusnúrum..... Hún er ekki alveg farin að skríða en hún kemur sér áfram á töluverðum hraða þegar hún eltir einbeitt dótið sitt. Svo er hún alltaf að æfa sig í að klappa, þetta er ekki alveg komið hjá henni en æfingin skapar meistarann. Og svo er eitt annað nýtt, Elma Hlín er komin með bumbu og það er bara krúttlegt, það verður spennandi að vita hvað hún er orðin þung en næsta skoðun er í byrjun mars.
Hér eru febrúarmyndir af dömunni.
Annars erum við að bíða eftir fréttum frá Eiríki og Amelíu, vatnið fór korter í tíu í morgun og í hádeginu fóru þau upp á deild....