Já, nú er karlinn orðin fimmtugur en hann náði þeim áfanga 22. janúar og fagnaði því laugardaginn 24. janúar í Ásbyrgi. Þar voru saman komnir hátt í 140 manns til að fagna því með honum og var það mál manna að vel hefði tekist til. Alla vega var verið að syngja og spila þar til klukkan var langt gengin í fimm. Guffa frænka okkar var veislustjóri, hún og pabbi eru systkinabörn, og það er alveg ljóst að veislustjórnun leikur í höndum hennar eins og allt annað.
Við tókum eitthvað af myndum en aðalega í restina, þær eru hér. Það má hins vegar sjá fleiri myndir hjá Sóleyju Láru og Birki og hjá mömmu.
Nú er skólinn byrjaður og það þýðir líka að fæðingarorlofið hans Valgeirs er byrjað. Það kom þó ekki í ljós hvernig því yrði háttað fyrr en ég var komin með stundatöflu og þetta púslast bara nokkuð vel saman. Hann verður í vinnu eftir hádegi á mánudögum, miðvikudaga og eftir kl 10 á föstudögum. Það er svolítið skrítið að vera ekki heima hjá litlu dömunni allan daginn en ég vissi svo sem allan tíman að þetta biði mín og gulrótin mín er svo bara að vera heima með henni í sumar. Annars er Valgeir að fíla þetta fínt er t.d. í Need for Speed núna...
Elma Hlín var lasin í síðustu viku, var með hósta, hor og hita á miðvikudag, fimmtudag og smá á föstudag svo við fórum ekki í sund á laugardaginn, við vorum alveg miður okkar. Nú er hún alveg að vera búin að ná sér, bara nokkrir hóstar og smá hor.
Mamma og pabbi voru fyrir sunnan um helgina en þau eru á fullu að undirbúa fimmtugsafmæli pabba. Við skulum hafa fingur í kross og vona að veðrið verði skaplegra þegar hann heldur upp á það heldur en það var í gær. Þau hringdu í mig á leiðinni norður en þá var hætt að halda Holtavörðuheiðinni opinni og þau voru á 5 km hraða í Bröttubrekku og urðu oft að stoppa vegna veðursins. Reyndar finnst mér svona vera bara stemming, svo lengi sem allt fer vel að lokum.
Segi þetta gott að sinni