desember 30, 2003

Jólafréttir

Við vonum að þið hafið öll haft það gott síðan jólahátíðin gekk í garð, fengið gott að borða og ekki þurft að fara í of mörg jólaboð.

Við áttum svo sannarlega náðuga daga, fórum norður á laugardag fyrir jól og komum aftur á föstudagskvöldið var til að fara í sund og brúðkaup. Reyndar var Valgeir veikur langt fram eftir vikunni og í nótt sem leið var Elma Hlín með hita, það var í fyrsta sinn sem við vitum til þess að hún sé með hita. En hún var hitalaus í morgun og hin hressasta í dag þrátt fyrir kvef og hor. Sóley Lára náði sér líka í veikindi og liggur enn svo við sendum henni baráttukveðjur heim í sveitna og vonum að hún hressist sem allra fyrst.

Það var virkilega gaman að upplifa jólin með Elmu Hlín og þó að að hún sé nú bara óviti ennþá og að næstu jól verði örugglega enn og skemmtilegri þá fannst okkur þetta alveg frábært og hún var sko ekki að hika við að rjúka í pakkana. Opnaði þá flesta sjálf með diggri aðstoð pabba síns og ömmu, innihaldið skipti þó engu máli, pappírinn og skrjáfið í honum dugði sko alveg þetta árið.
Hér má sjá myndir af aðfangadagskvöldi og dögunum þar í kring.

Meira um brúðkaupið, þau Kristrún og Aggi giftu sig í Lágafellskirkju þann 27. desember og héldu veislu í golfskálanum í Grafarholtinu sem var alveg þrusu góð. Margrét Eir söng í kirkjunni hjá þeim og VÁ.... ég fékk svo mikla gæsahúð að ég tók næstum tvö sæti. Og auðvita var Kristrún svo sæt að það var annað VÁ, hér verður svo brátt að finna myndir frá brúðkaupsdegi þeirra Agga.

Posted by ÞóreyArna at 12:05 FH | Comments (1095)

desember 21, 2003

Gleðileg Jól

Posted by valgeir at 01:44 EH | Comments (1013)

desember 16, 2003

Hætt að taka myndir....

Nei við erum sko ekki aldeilis hætt að taka myndir, ég hef bara ekki gefið mér tíma í að setja þær inn. Ekki svo að skilja að við séum í einhverju jólastressi heldur erum við líklega bara of afslöppuð, ég er t.d. að uppfylla loforð sem ég gaf sjálfri mér í fyrra, ólétt og á kafi í verkefni, að á næsta ári skyldi ég sko njóta aðventunar og gera það sem mig langaði og þegar mig langaði. Og við þetta er ég að standa.
Mamma kom um daginn og við bökuðum, svo bökuðum við Valgeir eitt kvöldið og við erum aðeins farin að athuga hvort kökurnar séu nokkuð farnar að skemmast, svo er ekki ennþá alla vega :O)
Í kvöld förum við örugglega í jólakortin, annað kvöld á Lord of the Rings, líklega með hangikjötsboð á föstudaginn og förum svo norður eftir sund á laugardaginn en allt er þetta í góðum gír og við farin að hlakka til jólanna.

Var að búa til desember albúm, þetta eru þó aðalega enn fleiri myndir af sundferðum okkar, við erum rosalega ánægð með sundtímana og viljum endilega deila þessari gleði okkar með þeim sem vilja vera memm ( er það ekki í anda jólanna....)

Posted by ÞóreyArna at 02:06 EH | Comments (679)

desember 02, 2003

Læra meira og meira, meir í dag en í gær

Já hún Elma Hlín er alltaf að læra meira og meira, í gær fékk hún t.d graut í fyrsta skipti og við sáum hana velta sér af maganum yfir á bakið í fyrsta skipti. Hún hefur 3 sinnum verið komin á bakið eftir að hafa verið á maganum en við aldrei séð það. Hún er þó ekki það meðvituð um þessa getu sína að hún stundi þetta grimmt og verður enn pirruð þegar hún nennir ekki að vera á maganum lengur en þetta hlítur að koma hjá henni.
Svo fór hún í 5. mánaða skoðun á fimmtudaginn var og var orðin 5780 gr og 65 cm.

Á föstudaginn ætlar mamma að koma suður og við mæðgurnar ætlum að baka saman eitthvað jólagúmelaði, okkur Elmu Hlín er strax farið að hlakka til.

Posted by ÞóreyArna at 11:54 FH | Comments (883)