Nú er Elma Hlín byrjuð í ungbarnasundi í Árbæjarlauginni, það finnst okkur öllum mjög gaman. Reyndar var hún svo spennt fyrir síðasta tíma að hún hafði engan tíma til að sofa og var því pínu að væla í byrjun tímans en við náðum að gera allar æfingarnar m.a. að fara í kaf sem var ekkert mál.
En það er meira en sund sem hún æfir þessa dagana, nú er hún að læra að setja snuðið upp í sig sjálf. Þetta gengur nokkuð vel hjá henni fyrir utan það að hún "gleymir" að sleppa snuðinu þegar það er komið á sinn stað. Þá er bara að halda áfram að æfa sig.
Aðfaranótt laugardagsins dreymdi okkur Valgeir bæði að Elma Hlín væri komin með tennur svo við fórum að athuga en fundum enga, bara eitthvað smá hrjúft í neðri góm, tékkuðum aftur á þessu á sunnudaginn og enn var þetta hrjúft. Það var svo á mánudaginn að það var komin tönn í stað þess sem áður var hrjúft. Ég fór að athuga hvenær ég fékk mína fyrstu tönn og þá kom á daginn að það munaði einum degi að við værum jafn gamlar þegar við fengum okkar fyrstu tönn. Gaman að því eins og flestu öðru þessa dagana.
Setti inn nýjar myndir í nóvember albúmið, m.a. úr sundinu og því þegar Óli Fjalar kom síðast í heimsókn.
Það hefur ýmislegt drifið á daga okkar síðan "síðast", t.d. fórum við í afmæli til langömmu Tótu, fórum á Bálkastaði, heimsóttum Árna langafa og fórum í morgunkaffi hjá systkinum Jóu. Þá stöndum við líka í því að update-a aðeins í íbúðinni okkar. Vorum að lakka gluggana, mála í eldhúsinu og svefnherberginu og skipta um sólbekki svo íbúðin er eins og eftir sprengiárás, þetta verður vonandi orðið mannsæmandi aftur á sunnudaginn.
Á morgun erum við svo að fara í fyrsta sundtíma Elmu Hlínar, vonandi á henni eftir að finnast það jafn spennandi og að sprikkla í baðinu. Hún fór í auka vigtun 30. október og vóg 5625 gr og heldur sig við sína kúrfu. Annars er hún alltaf jafn spræk og stundar magaæfingarnar grimmt, hvort sem það er í bílstólnum, ömmustólnum eða bara liggjandi á bakinu.
Hér eru myndir frá Bálkastöðum, afmæli Tótu og hér eru myndir af hinum atburðunum.