Við fórum á Akureyri um síðustu helgi. Fórum í Bálkastaði á föstudeginum og á Akureyri á laugardeginum, mamma var að fara á kynningarfund fyrir foreldra nýnema í MA svo við ákváðum að skella okkur bara líka. Við vorum hjá Sonju, Elvari og Örvari í góðu yfirlæti. Við skoðuðum auðvita vistina hjá Valeyju Söru, þ.e. nýju vistina, þetta er voða fínt, herbergin rúmgóð og eldhúskrókur í hverju herbergi sem og baðherbergi. En það er eitt og annað sem má bæta og vonandi vinna þeir í því við fyrsta tækifæri. Hér eru myndir frá Akureyri.
Við erum búin að setja fleiri myndir í októberalbúmið, t.d. myndir af Elmu Hlín að veltast berrössuð á gæru og fyrsta skiptinu sem hún fór ein í bað. Þær eru hér.
Það er svo gaman að segja frá því að við Sonja fórum í leikhús í gær, á Hættuleg kynni með stórstjörnunni Kristjönu Skúladóttur. Þetta var mjög skemmtileg sýning og ekki einungis stórleikur sem gladdi augað því daman sveiflaði einnig mjöðmunum mjúklega í cha cha cha. Mæli með þessari sýningu fyrir leikhúsunnendur.
Valgeir fór að hitta útskriftaárganginn sinn úr Breiðholtsskóla um daginn. Það var þvílík stemming og hér eru nokkrar myndir frá því.
Vonandi ratar Inger hér eftir vandræðalaust á síðuna okkar :)
Af Elmu Hlín er það að frétta að hún fór í 3. mánaða skoðun 24. september og þá hafði hún bara þyngst um 200 gr frá 4. september og var orðin 5195 gr. Það þótti ekki alveg nógu gott svo við áttum að reyna að taka okkur á og vita hvort hún myndi ekki bæta á sig. Ég fór í það að gefa henni í tíma og ótíma en hún þekkir sitt magamál og skilaði bara því sem var umfram. Svo hún er aftur farin að ráða förinni. Það var hins vegar tekið fram að hún væri greinilega heilbrigt og sterkt barn. Enda kom það á daginn, annan daginn í sveitinni tók hún upp á því að byrja að velta sér af bakinu yfir á magann, ekki orðin 3. mánaða. Reyndar fer hún nánast eingöngu yfir til hægri en var að æfa vinstri hliðina í gær. Okkur var sagt að koma aftur í vigtun þegar við kæmum í bæinn og það gerðum við í morgun, nú var hún orðin 5355 gr. Það þótti helst til of létt en hún er að halda þeirri kúrfu sem hún var komin í síðast. En þar sem hún er spræk og heilbrigð þá verður ekkert gert að þessu sinni og jafnvel talið að hún sé bara svona fíngerð. Við eigum samt að koma aftur þegar hún verður 4. mánaða til að fylgjast betur með þessu.
Elma Hlín heldur upptekinni venju að sofa á nóttunni og nú er það orðin alger undanteknig ef hún vaknar til að drekka á nóttunni. Hins vegar er hún dugleg að vaka á daginn og er alltaf að borða höndina á sér og sýnir þess merki að hún sé farin að finna fyrir tönnum þó svo að þær láti nú ekki sjá sig alveg strax. Sem betur fer....
Við mæðgurnar erum búnar að vera lítið heima undanfarið. Þannig var mál með vexti að pabbi bauð Valgeiri, Birki og Halla í veiði þann 24 september en Birkir komst því miður ekki. Við hin fórum hins vegar og við Elma Hlín urðum eftir. Valgeir kom svo aftur þá um helgina og Óli Hrafn með honum því það átti að setja í slátrun strax eftir helgina. Nú við Elma Hlín héldum áfram að vera í sveitinni í góðu yfirlæti. Á fimmtudag fór svo að streym að fólk til að hjálpa til við heimalandasmölunina. Þetta gekk allt voða vel og gott að hafa svona mikið af duglegu fólki. Við komum svo heim á sunnudagskvöldið.
Hér má sjá myndir úr þessari för.