september 17, 2003

3 skiptið í sumarbústað þetta sumarið

Við vorum í sumarbústað í Skorradal með Óla og Sirrý um síðustu helgi. Það var voðalega notalegt enda er svo fallegt þarna. Við vorum reyndar bara inni og hlustuðum á rigninguna dynja á þakinu og vorum ýmist að lesa, spila eða borða. Myndirnar.

Í gær komu Sigga og Gabríela í heimsókn til okkar og svo fórum við bæði til langömmu Tótu og fórum til Jennýjar Birtu og Sigrúnar Hörpu. Hér eru nokkrar myndir úr þessum heimsóknum

Posted by ÞóreyArna at 01:29 EH | Comments (747)

september 11, 2003

11 vikna skvísa

Já á morgun verður Elma Hlín 11 vikna, þetta eru búnar að vera 11 yndislegar vikur. Helst þarf hún að láta heyra í sér á kvöldin en hún sefur allar nætur ( 7, 9, 13 ) og þegar hún svo vaknar á morgnana þá vakir hún í ca 2 klst áður en hún fær sér næsta lúr. Það er svo misjafnt hvað hún sefur mikið á daginn. Nú er hún farin að dunda sér sjálf bæði í ömmustól og með leikgrind yfir sér og svo er hún farin að lyfta sér stundum upp á olnbogana þegar hún liggur á maganum. Elma Hlín er orðin 5 kg og 59.5 cm.

Það er gaman að segja frá því að búið er að skíra litlu frænku okkar, dóttir Ísgeirs og Sollu, og heitir hún Telma Sól. Til lukku með fallega nafnið þitt.

Við eru alltaf jafn dugleg að taka myndir af skemmtilega myndefninu okkar.

Posted by ÞóreyArna at 02:42 EH | Comments (821)