ágúst 28, 2003

Í sumó með B + B

Við vorum í heimsókn hjá Bjarna og Bylgju í Húsafelli um síðustu helgi. Þau voru svo út vikuna í notalegheitunum. Þema helgarinnar var átmaraþon og Kani og svo er ekki farið í sumó án þess að taka eitt Trivial sem við stelpurnar unnu húrra, húrra, húrra......

Takk B + B fyrir að bjóða okkur memm.

Myndirnar

Posted by ÞóreyArna at 07:15 EH | Comments (674)

ágúst 22, 2003

Hvað er að gerast?

Það mætti halda að við hefðum ekki verið að gera neitt undanfarið en því fer fjarri. Við erum bara búin að vera að bralla svo margt að það hefur ekki gefist tími til að sinna síðunni.

Einn föstudaginn hjóluðu Valgeir, Óli og Eiríkur á Þingvelli. Við stelpurnar komum nú bara bílandi og við gistum öll í bústað frá foreldrum Sirrýjar. Þeir hjóluðu svo í bæinn aftur daginn eftir í miður góðu verði. Hér eru myndir frá því.

Ísgeir og Solla komu í heimsókn með litlu dömuna sína sem er fædd 1. ágúst. Það var voða gaman að fá þau og við tókum myndir af þeim frænkum saman.

Við fórum í bíltúr með Sóleyju Láru og Birki á sunnudaginn upp í Hvalfjörð og Skorradal. Enduðum svo nánast óvart í grilli á Bálkastöðum hjá pabba. Ákváðum svo bara að vera þar eitthvað áfram. Valgeir, Sóley Lára og Birkir fóru suður á mánudeginum til að ná í þetta allra nauðsynlegasta t.d. nýja grillið og svo var grillhátíð hjá okkur fram á miðvikudag. Auðvita var myndavélin með í för.

Og svo eru hér myndir frá 5 - 6 viku.

Svo það ætti að vera eitthvað af nýjum myndum að skoða ef einhver hefur áhuga...

Posted by ÞóreyArna at 01:23 FH | Comments (836)