júlí 31, 2003

Myndir frá skírn Elmu Hlínar

Nú er ég loksin búin að fara í gegnum myndirnar frá helginni. Þ.e. frá brúðkaupi Sólrúnar og Mikka þann 26. júlí en það var í alla staði hið glæsilegasta. Og frá skírn Elmu Hlínar sem var sunnudaginn 27. júlí.

Posted by ÞóreyArna at 03:03 EH | Comments (419)

júlí 27, 2003

Barnið er búið að fá nafn

Í dag var dóttir okkar skírð, hún heitir Elma Hlín Valgeirsdóttir. En það kemur meira um það síðar, því við erum ennþá í sveitinni.

Posted by valgeir at 04:16 EH | Comments (471)

júlí 19, 2003

Heiðmörk 2003

Hin árlega Heiðmerkur ferð Fimmtudagsklúbbsins var farin síðast liðinn fimmtudag. Það var alveg brilliant veður og snilldar mæting. Hér eru myndirnar.

Posted by valgeir at 10:07 EH | Comments (340)

Snæfellsnes 2003

Loks eru komnar nokkrar myndir frá því þegar Fimmtudagsklúbburinn fór á Snæfellsnes helgina 11. - 13. júlí.

Posted by valgeir at 10:00 EH | Comments (393)

júlí 15, 2003

4 kg

Það kom ljósmóðir í heimsókn til mín áðan og vigtaði mig og viti menn, ég er orðin 4 kg svo ég er bara að þyngjast vel. Hún athugaði líka hvort ég væri ekki örugglega með göngu-viðbrögðin á hreinu og ég hljóp um rúmið, að vísu með hennar aðstoð. Svo er alltaf verið að taka myndir af mér sem við viljum deila með þeim sem vilja skoða. Það koma fljótlega inn myndir úr fyrstu útilegunni minni, reyndar gisti ég ekki en ég ætla samt að kalla þetta útilegu.

Posted by ÞóreyArna at 03:15 EH | Comments (353)

júlí 11, 2003

Stækka og þyngist

Jæja, núna er helmingur skráðra meðlima úr "tilvonandi eiginmenn" klúbbnum búnir að koma í heimsókn þ.e. Örvar Ernir og Óli Fjalar en Bergur og Kári Tómas eru ekki búnir að sjá mig ennþá nema á netinu. Þeir koma vonandi bráðum.

Annars er það helst að frétta að það kom ljósmóðir í heimsókn til mín á miðvikudaginn og hún vigtaði mig, ég er orðin 3850 gr enda er ég dugleg að drekka.

Posted by ÞóreyArna at 07:26 EH | Comments (530)

júlí 08, 2003

Gengur eins og í sögu

Það er óhætt að segja að við eigum formúlu barn (sem kemur vonandi til með að halda með Schumacher segir mamman ...). Annars átti ég nú ekki við þannig formúlu barn, heldur sefur hún eins og engill, vaknar eftir 3 til 4 klst. drekkur vel og er dugleg að kúka, er það ekki einmitt það sem lífið gengur út á þegar maður er svona nýr. Við erum líka voða dugleg að taka myndir af henni og setja hér inn t.d. svo að amma og afi geti nú fengið að fylgjast með þar til við hittumst næst.

Posted by ÞóreyArna at 04:04 EH | Comments (317)

júlí 02, 2003

Nýjar Myndir

Stúlkan okkar er búin að vera alveg til fyrirmyndar og allt gengið mjög vel. Hún er búin að fara í sína fyrstu skoðun og fékk engar athugasemdir. Í dag gerðu hún stykkin sín á mömmu sína og þótti það bara nokkuð gott og er jafnvel að spá í að gera það aftur. En það eru komnar nokkrar nýjar myndir

Posted by valgeir at 04:30 EH | Comments (642)