apríl 13, 2003

Well, well, well

Jæja, nú er ég búin í prófunum og er bara að vinna í B.S. verkefninu. Þá fer ég kannski að eignast smá líf ...... og fyrst ég er búin að eignast smá
líf á ný þá er um að gera að fara í gegnum myndirnar og koma þeim á sinn stað. Þetta það helsta sem á daga okkar hefur drifið undanfarnar vikur:
- Við fórum í heimsókn til Kristjönu, Freys og Óla Fjalars
- Svo fórum við líka og kíktum smá á Gunnar, Hörpu og Helenu
- Þá erum við búin að standa í því að taka baðherbergið okkar í gegn
- Valgeir skellti sér í bjór og keilu með vinnunni
- Þórey Arna fór í saumó með ML pæjum

Annars líður okkur öllum bara vel og við vöxum og döfnum. Meðgangan gengur vel og það er orðið ljóst að það er formúluáhugamanneskja
á leiðinni ef marka má lætin þegar ég er að horfa á formúluna ( áfram Schummi !!! ). Samkvæmt útreikningum ljósmóðurinnar þá ætti
ekki að vera eftir nema 2 og 1/2 mánuður og það er víst nóg sem á eftir að gera áður en við getum tekið á móti nýja fjölskyldumeðliminum,
reddum því í júni þegar verkefnið er búið.

Jæja, segjum þetta gott í bili, það má ekki ofgera þessu fyrst við loksins settum eitthvað nýtt stöff hér inn!!!!

Posted by ÞóreyArna at 08:43 EH | Comments (805)