október 14, 2002
Heimsókn hjá Kristjönu
Við vorum í heimsókn á Sængurkvennadeildinni hjá þeim Kristjönu, Frey og syni þeirra sem er svo sætur og fínn. Það verður gaman að fá að knúsast með hann á næstunni, en ekki fyrr en eftir næstu helgi því þangað til ætlar hann að vera á Landspítalanum. Að sjálfsögðu tókum við
myndir því mamma og pabbi eiga ekki digital myndavél ENNÞÁ......
Kristjana og Freyr eignuðust son
Kristjana og Freyr eignuðust son 12.október, hann var 13 merkur, 3382 gr og 51 cm og það tók á taugarnar að koma honum í heiminn. Elskurnar, til hamingju með þennan myndarlega dreng.
október 02, 2002
Örvar Ernir
Sonja og Elvar skírðu drenginn sinn í gær og fékk hann nafnið Örvar Ernir. Við vorum að fá sendar nýjar
myndir af kappanum sem braggast greinilega mjög vel.