ágúst 24, 2002
Partý hjá Hlyn og Maríu Helen
Við fórum í afmæli hjá Maríu Helen og Hlyns þar sem þau héldu upp á það að vera orðin 25 ára (allavegana María Helen) í sal Sjálfstæðismanna í Breiðholti. Þarna var saman kominn Fimmtudagsklúbburinn og önnur ættmenni þeirra Maríu og Hlyns. Því auðvitað er Fimmtudagsklúbburinn orðin fjölskylda þar sem Don Vignir leiðir hópinn. En nóg um það því það eru komnar nokkrar myndir frá atburðum gærkvöldsins og auðvitað er Atli að taka Lög og Regla á nokkrum
myndum.
ágúst 22, 2002
Sonja, Elvar og drengur
Nú erum við búin að fara á Akureyri að heimsækja Sonju, Elvar og litla, sæta kútinn þeirra. Við tókum fullt, fullt af
myndum af honum og foreldrum hans, enda með eindæmum myndaleg fjölskylda. Vonum að flutningarnir komi til með að ganga vel um mánaðamótin og hlökkum til að koma næst.
ágúst 13, 2002
Myndir frá Steggjun Bóasar
Athugið að við erum búin að setja inn
myndskeið af Atla taka Lög og reglu og af Bóasi að syngja með Ný Dönsk þegar verið var að steggja Bóas. Þetta er aftast, þ.e. á síðustu myndasíðunni. Algert must see .
Brúðkaup Bóasar og Dóru Guðrúnar
Þann 10. ágúst gengu Dóra Guðrún og Bóas í hjónaband. Þau giftu sig í Skálholtskirkju og veislan var í Aratungu. Þetta var allt svo fallegt og fínt hjá þeim og við óskum þeim enn og aftur til hamingju. Við tókum nokkrar
myndir sem gaman er að skoða.
ágúst 03, 2002
Bóas Steggjaður
Í gær var steggjapartýið hjá Bóasi og heppnaðist það bara prýðilega allir tiltölulega ölvaðir og mikið sprell.
Löggan tók hann fastan, fórum í ylströndina og settum hann í reykköfun. Svo fórum við á hestbak og grilluðum. Drukkum meira á vesturport og því næst söng Bóas með Ny Dönsk á Gauknum.
Myndirnar