júlí 21, 2002

Brúðkaup

Takk fyrir okkur. Við viljum endilega þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur að gera þetta brúðkaup algerlega ógleymanlegt, alla vega vitum við að við eigum seint eftir að gleyma því og erum enn brosandi hringinn :o) Þetta hefði ekki geta orðið að veruleika nema með ykkar ómetanlegu hjálp. Það krafðist töluverðs unidrbúnings að gera hlöðuna veisluhæfa en ef viljinn er fyrir hendi þá er allt hægt. Og auðvita viljum við líka þakka þeim sem lögðu á sig ferðalag til að geta tekið þátt í þessum stóra degi í lífi okkar. Takk enn og aftur og með von um að allir hafi skemmt sér vel... Munið að þið getið skifað í gestabókina hérna á síðunni. Myndirnar eru svona að smella inn... Hjónin Valgeir og Þórey Arna
Posted by at 09:56 EH | Comments (277)

júlí 11, 2002

5dk í Heiðmörk

Fimmtdagsklúbburinn fór í sína árlegu Heiðmerkur ferð í gær. Eins og alltaf lék veðrið við okkur og skemmtu sér allir bara prýðilega. Hérna er myndirnar frá því í gær.
Posted by at 09:55 EH | Comments (490)

júlí 08, 2002

Gæs, saga fyrir karlmenn

Starfsmannastjóri gerði Þóreyju Örnu grikk, sendi hana á umferðamiðstöðina, Carlos sendi hana til Keflavíkur í rútu en á Fjörukránni var hún sótt og farið með hana að gefa dýrunum í Húsdýragarðinum. Þær vinkonurnar fengu sér kaffi, fóru í nudd og heitanpott á Hótel Loftleiðum. Sumarbústaður og svoldið fyllerí.
Posted by at 09:54 EH | Comments (435)

júlí 05, 2002

Ættarmót

Það var haldið ættarmót afkomenda Ingibergs Þorsteinssonar og eiginkvenna hans á Efri-Ey í Meðallandi ( V-Skaftafellssýslu ) helgina 28. - 30. júní s.l. Það var mjög vel heppnað þó svo að rigning hafi sett strik í reikninginn. Við létum það þó ekkert á okkur fá og hér er hægt að sjá myndir þaðan. Athugið að hægt er að tvísmella á mynd og þá birtist hún stærri, það er einnig hægt að tvísmella á hana aftur og þá sést hún enn og stærri. Njótið vel :o)
Posted by at 09:53 EH | Comments (438)

júlí 03, 2002

Steggjasagan

Steggur, karlmanna útgáfan... Bjarni plataði mig, fengum okkur pylsu, flaug lítilli flugvél, vann alla í strandblaki, fór í golf og var fullur.
Posted by at 09:52 EH | Comments (339)

Gæsasagan

Hér kemur gæsasagan mín, þetta er lengri útgáfan..... Dagurinn byrjaði vel, ég vissi að það ætti að steggja Valgeir og var að laumupúkast með það allan daginn, voða spennt fyrir hans hönd. Þeir nöppuðu honum svo úr húsi um hádegið og ég var bara á leiðinni norður eftir vinnu. Eða það hélt ég alla vega..... Ca. korter í tvö hringdi Tómas starfsmannastjóri í mig. Ég var orðin of sein á fund hjá honum. Ég hafði aldrei fengið nein fundarboð og var því pínu undrandi en kom mér strax upp á skrifstofu til hans. Ég vissi ekki hvað hann ætlaði að ræða við mig en þegar ég sá hvað hann var með á borðinu þá fattaði ég það strax, Sumarfrísvandamál. Hann var að biðja mig um að minnka fríið mitt í kringum brúðkaupið, humm..... Þórey Arna var ekki alveg á því. Til málamiðlunar var svo sem í lagi að taka aðeins framan af því, þ.e. kannski miðvikudaginn fyrir brúðkaupið, og ef í hart færi líka fimmtudaginn. En föstudaginn fyrir og vikuna eftir var ekki séns að ræða. Ég ætlaði þá sko að vera í sumarbústað með nýbökuðum eiginmanni mínum. Við ræddum þetta fram og til baka. Svo segir Tómas, þú átt nú svolítið vonda vinkonur. Ég hugsaði með mér að hann ætti við þessar sem ég er að vinna með og auðvita væru þær ekki vondar, þetta væri bara slæm tímasetning og óneitanlega fylgikvilli sumarfría. En ég svaraði bara hægversku nei. Jú, sagði hann, hallaði sér aftur í sætinu og teygði sig í bleikan poka sem hann var með bak við skáp. Eftir að hafa skellt bleika pokanum á borðið þá fór hann að týna upp úr honum...... lopapeysa..... ég byrjaði að tauta fyrir munni mér í sífellu nei, nei, nei. Gúmiskór.... ég hækkaði róminn og fann að ég var komin með hnút í magan..... skupla...... hvers átti ég að gjalda hugsaði ég með sjálfri mér hálf grátandi og hálf hlæjandi..... Það var ekki hægt að skorast undan svo það var best að týna á sig spjarirnar. Fyrst las ég þó bréf sem þessu fylgdi. Ég átti að fara á Umferðarmiðstöðina og koma gangandi þangað, það myndi ég fá frekari fyrirmæli. Tómas opnaði skrifstofuna sína og fyrir utan stóð hlæjandi fólk, það höfðu svo margir vitað af þessu, ekki þó hún Þórey Arna. Þá var bara að koma sér af stað. Fyrir algera tilviljun voru foreldrar hans Valgeirs staddir í anddyrinu og þau vissu ekki neitt um málið. Ég fékk svo far hjá þeim út á Umferðarmiðstöð því ég var að renna út á tíma. Þegar þangað var komið þá rölti ég að góðu sæti og kom mér fyrir og greip Undirtóna til að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég var þó alltaf að líta í kringum mig en ekkert gerðist. Það kom svo gangandi til mín "túristi" og spurði mig á ensku hvort ég væri í hefðbundinni íslenskri peysu. Jú, ég taldi svo vera og spurði hann svo hvort hann væri partur af þessu djóki. Hvaða djóki, spurði hann.... gat það verið að þetta væri tilviljun...... en þar sem við héldum áfram að spjalla og hann var allan tímann að taka mig upp á videó þá gat það bara ekki verið. Og auðvita kom að því að málin fóru að skýrast betur. Carlos ( "túristinn") rétti mér umslag og spurði hvort þetta væri mitt nafn sem stæði utan á því. Ég tók við umslaginu því auðvita var þetta mitt nafn. Þar var að finna leiðbeiningar um framhaldið, ég átti að fara um borð í rútu og ekki fara úr henni fyrr en á Leifsstöð. Þessu fylgdi einnig flugmiði en hann mátti ég ekki kíkja á fyrr en ég væri komin út í Leifstöð. Carlos sá um að koma mér í rútuna og alltaf var hann með videóvélina á lofti. Hann skemmti sér hið besta sýndist mér, það var nú gott. Fólkið í rútunni var óneitanlega hissa á klæðaburði mínum og því að ég væri alltaf að skoða í kringum mig svo þau spurðu mig bara hvað væri málið....... Þegar rútan fór af stað þá var ég fegin að hafa tekið Undirtóna með mér en gat þó ekki einbeitt mér að því að lesa því ég var alltaf að bíða eftir því sem myndi gerast næst, það voru nokkur stopp á leiðinni og ég var alltaf að bíða eftir að sjá kunnuleg andlit, ekki varð mér að ósk minni. Það var líklega bara best að fara að sætta sig við staðreyndirnar, ég væri á leiðinni í Leifsstöð. Þar sem ég var búin að sætta mig við þá þá var ég hætt að fylgjast með hvar rútan stöðvaði og hvað gerðist þegar hún stöðvaði. Á einum staðnum kom svo strákur inn og kallaði nafnið mitt, það hlaut að koma að því, ég bara gat ekki verið á leiðinni út á Leifsstöð..... kommon, hver hefði svo sem trúað því ;-) Ég auðvita dældi á hann spurningum um hvað myndi gerast nú. Hann hélt ró sinni, rölti út í sjó og náði í bjór handa mér, þá leið mér strax betur, bjór hefur lækningamátt ef þið vitið það ekki nú þegar. Ég fór að líta í kringum mig, við vorum við Fjörukránna í Hafnafirði. Hummm....... ég var aftur farin að leita að kunnulegum andlitum og leit í hvern og einn einasta glugga á Fjörukránni, sá ekkert, ekki einu sinni víkinga. Við fórum á rúntinn, það var nú svo sem ekki amalegt að vera á rúntinum klukkan þrjú á föstudegi og að drekka bjór. Ég náði að draga það upp úr Nonna að hann væri frændi hennar Maríu Helenar. Ég var að ná að setja eitt og eitt púsl í viðbót við heildarmyndina. Stefnan var tekin á Laugardalinn, Nonni spurði mig hvort ég hefði gaman af því að fara á skauta, ég hélt að það væri ekki svell þarna á sumrin en hann sagði að við skildum líta út úr bílnum og tékk á þessu. Hann rölti svo ekkert í áttina að Skautahöllinn heldur Húsdýragarðinum..... ég elti bara...... Og viti menn, heyrast ekki hlátrasköll úr fjarska og þau færðust nær eftir því sem ég nálgaðist Húsdýragarðinn. Þar tóku á móti mér Ágústa, Kristjana, Sóley Lára, Magga Dóra, María Helen, Amelía og Lilja Björg. ( Vona að ég sé ekki að gleyma neinum....) Eftir að við komum inn í garðinn þá var stefnan tekin á hestana, þar var búið að græja að undir mér skyldi vera teymt, íííhhaaaaaaaaa. Svo fengum við að fara í hringekjuna, meira að segja var sett á hraða 2, bara spes fyrir okkur. Þá byrjaði hasarinn. Starfsstúlka í garðinum tók bara til við að skipa mér fyrir verkum, það var svo sem í lagi, ég ætti nú að kunna eitthvað til verka. Fyrst setti ég sag hjá svínunum og kúnum. Þá gaf ég svínunum banana og öðrum hey. Þreif svo ganginn eftir mig. Nú voru selirnir næstir á dagskrá Ég fékk fulla fötu af loðnu og síld og fékk svo að fara inn til þeirra, ekki í vatnið þó. Ég kom mér fyrir upp á stein og byrjaði að kasta til þeirra, þetta var voða gaman. Þeir léku smá listir fyrir okkur, hoppuðu upp í matinn og virtust líka skemmta sér yfir þessu. Það var fullt af fólki fyrir framan mig að horfa en ég tók varla eftir því. Þegar fatan var orðin tóm þá þurfti að gefa minnsta kálfinum að drekka. Ég hafði ekki gefið kálfi að drekka í mörg ár, það gat ekki hafa breyst svo mikið. Ég fór með pelann af stað og sá strax hver átti að fá sopann, hann var lang minnstur. Þetta gekk vel til að byrja með eða þar til einhver af stelpunum kallaði til mín, Guttormur er að koma, Guttormur er að koma. Ég leit til þeirra og þóttist vera voða hrædd, hvað ætti hann svo sem að vera að gera í þessu hólfi. En hvað ætti hann svo sem að vera að gera í örðu hólfi, þarna voru jú nautgripirnir og það var nokkuð ljóst að Guttormur var líka þarna. Hann var meira að segja á leiðinni til mín, og ekki bara á leiðinni, hann var kominn upp við mig. Ég hugsaði þó strax með sjálfri mér, ég væri ekki þarna nema af því að þetta væri í lagi, en ég get sagt ykkur það að í þessari nálægð þá er hann RISASTÓR. Það voru hins vegar hinir kálfarnir sem voru að stríða mér, þeir vissu alveg hvað var í pelanum og langaði svo að fá líka. Ég mátti hafa mig alla við, við að bægja þeim frá og þetta tókst allt að lokum. Næst voru það hinar gæsirnar, þær komu hlaupandi til mín og mér fannst eins og þær voru eitthvað að brosa að mér, eins og ég væri ekki nógu sannfærandi gæs. Je sjor. Nú fengu stelpurnar frí fyrir mig sem gestastarfsmaður í Húsdýragarðinum. Við röltum á Kaffi Flóru enda ekki langt að fara. Þar fengum við okkur kökusneið og settumst út í sólina, það var geggjað veður, þó svo að það hafi ekki litið þannig út um morguninn. Þar sem við sátum þarna og höfðum það gott þá kom labbandi til okkar strákur. Hann sagði svo bara: Jæja, ég er kominn........ ég vissi ekki hvað yrði næsta mál á dagskrá og var strax farin að vona að þessi stákur kæmi ekki þar nærri. Ég fann að ég var eins og eitt stórt spurningarmerki í framan. Svo leit ég í kringum mig og sá að hinar stelpurnar voru það líka, hvað var í gangi. Svo sagði hann bara: Nei, djók og rölti í burtu. Vá hvað við flissuðum að þessu. Þegar kökurnar voru búnar og líklega tíminn líka ( þetta var ströng dagskrá ) þá fórum við að bílunum. Við skiptum okkur í bíla og héldum af stað. Auðvita vissi ég ekki neitt fyrr en við komum fyrir utan Loftleiðir, við fórum í kjallarann og mér var sagt að fara inn í klefa og fara úr fötunum. Ég fékk líka slopp til að fara í og svo kom kona að sækja mig, ég var á leiðinni í nudd. Það var yndislegur klukkutími. Ég heyrði svo í stelpunum fyrir utan og þær biðu í pottinum eftir mér. Þá höfðu fleiri bæst í hópinn, Sonja kúlustelpa, Sirrý, Sigga, Sigga Maja, Silla og Dóra Guðrún sem ég þekkti nú bara ekki í fyrstu ( vá hvað ég var dónaleg, sorry ). Við vorum í pottinum í dágóða stund, þær sem vildu fengu vín í pottinn og það kjaftaði á okkur hver tuska auk þess sem fram fór smá myndataka. Við fórum upp úr í hollum því það voru ekki nema 3 sturtur. Þegar við svo héldum af Loftleiðum þá var ég búin að komast að því að við værum að fara í sumarbústað, reyndar ekki Amelía og Sigga Maja enda eiga þær litla stubba sem þurfa að fá sitt. ( þær eiga svo sem líka aðra litla stubba sem þurfa líka að fá sitt en þeir voru vant við látnir þetta kvöld ). Ég mátti koma við heima og ná mér í svefnpoka og tannbursta. Svo lá leiðin austur fyrir fjall að Apavatni nánar tiltekið. Þar var Magga Dóra mætt og búin að kveikja upp í kolunum. Inga Birna hafði bæst í hópinn. Þar var grillað og opnaður meiri bjór. Kvöldið leið, svo kom nóttin og þá nýr dagur. Þegar sólin var að koma upp þá fórum við síðustu í háttinn, eitthvað að ganga sex. Það má ekki hafa allt eftir sem fram fór þessa nótt en okkur til dægrardvalar þá var m.a. spilað Actionary og María Helen kenndi okkur dans. Auðvita féllu nokkur gullkorn m.a. þegar nokkrar okkar voru að leika flísatöng þá lék Sirrý fánastöng, og þegar Inga Birna lék orðið flasa þá fagnaði María Helen ógurlega þegar hennar lið hrópaði: múna....... Það var einnig eftirminnilegt hvernig Madonna var sett á svið svo augljóst væri, alla vega fyrir nokkra!!!!! Einhver símtöl fóru á milli okkar og strákanna sem voru í bústað í Skorradal og var það bara gaman, sérstaklega hvernig Lilja Björg steinhætti að rífast í símann þegar hún áttaði sig á að hún var að tala við Vigni. Vonandi var þetta bara forsmekkurinn á því sem koma skal 20. júlí næst komandi, alla vega stefnir allt í að það geti orðið góður dagur, hvað finnst ykkur? Sætu stelpur sem stóðuð að þessum degi fyrir mig Takk æðislega, ég skemmti mér ofsalega vel og væri alveg til í að endurtaka þetta en það þýðir víst annað brúðkaup svo það fellur um sjálft sig. Knús og kossar frá verðandi frú Þóreyju Örnu
Posted by at 09:51 EH | Comments (252)