júní 25, 2002
Steggjapartý
Komnar myndir frá steggja partýinu
júní 14, 2002
Ölvesvatn II
Ég komst að svolitlu þegar ég var að skoða myndirnar sem ég tók í "veiðiferðinni" að það er aðeins ein mynd þar sem sést í veiðistöng, og þá liggur hún upp við bíl. En það er nú ekki svo því við sýndum mikla viðveru við vatnið. En ég vona að þegar ég fæ myndirnar frá Dóra að þar komi nú önnur stöng í ljós og jafnvel vöðlur. En alla vegana eru komnar myndir á síðuna
júní 11, 2002
Nokkur orð um fótbolta
Fótbolti er þvílíkur grenjandi öfuguggaháttur að það er leitun að öðru eins helvíti á þessum hnetti. Menn eru fyrst og fremst í fótbolta til að strjúka rassinn á samherjum sínum þegar þeir hafa skorað. Það er ekki flóknara en það. Stundum eru þessir kúkalabbar orðnir svo kynferðislega æstir þegar ekkert mark hefur verið skorað í langan tíma að loksins þegar einhver skorar þá ráðast þeir á hann slefandi og leggja hann flatann á jörðina og fara að kyssa hann og kjassa og strjúka hann allan hátt og lágt og riðlast á honum í hópum eins og kanínur. Hommakanínur. Þegar andstæðingurinn á aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig þá safna þeir sér þétt saman og halda um slátrið á sér. Hálfvitar. Þeir eru ekki að passa á sér hausinn. Nei, þeir þurfa ekkert á honum að halda í fótbolta. En slátrið þurfa þeir að vera með í lagi ef þeir eiga að geta fengið eitthvað kikk út úr leiknum.
Þessir asnasparkarar eru allt saman saurþjöppur fram í fingugóma ættu að fara í lögformlegt umhverfismat. Það má undrun sæta að sjónvarpið skuli vera að sýna frá þessu helvíti. Ég sem góður og gegn borgari, ímynd siðgæðis og tandurhreins hugarfars, ætla að fara fram á það við Sjónvarpið að það hætti tafarlaust að sýna þessar viðbjóðslegu klámmyndir.
- Sverrir Stormsker
Ölvesvatn
Um helgina var farið að veiða með karlaklúbbinum í Ölvesvatni norður á Skaga, veiði var nokkuð góð og veðrið alveg til fyrirmyndar. Nema hvað hann Bóas veiddi ekki neitt.
Myndirnar koma inn um leið og ég kemst heim. Eftir helgina mæli ég ekki með að labba meira en svona kílómetra í vöðlum með allar græjur.
júní 04, 2002
Golf er bara snilld
Jæja fórum í golf í blíðunni í dag, það var fínt en ég mæli ekki með að fara á Bakkakot, dýrt og völlurinn ekki nógu góður. Einnig hafa þeir ekki viljað eyða of miklum tíma eða peningum í að laga völlinn eða koma honum í stand eftir veturinn.
júní 03, 2002
Partý hjá Atla og Lilju
Við vorum í brjáluðu partýi hjá Atla og Lilju á laugardagskvöldið.
Löggan kom og allt en ekki að ég hafi tekið eftir því ( enda var ég full híhíhí )
Ætlaði bara að láta ykkur vita að það fara að koma myndir þaðan....