desember 01, 2008

Of sein nóvemberfærsla

Nú klikkaði ég heldur betur, engin nóvemberfærsla. Uss uss uss
Enda beið mín kvörtunarbréf í póstinum í morgun - ég biðst afsökunar Inga Hrund!!!
Eitt og annað hefur nú samt á daga okkar drifið í nóvember og þar ber helst að nefna að Elvar Hrafn fór að ganga 17. nóvember. Þá var hann búinn að vera að ganga á milli okkar í nokkrar vikur en þorði ekki að skella sér út í þetta nema að hafa öruggan lendingarstað á hinum endanum. En eftir kvöldmat þann 17. þá bara lét hann sig hafa það og rölti af stað út í óvissuna og mikið skemmtum við okkur vel öll saman yfir þessu. Við hlógum og hlógum að honum því hann var vissulega svolítið fyndinn í þessum óstyrku skrefum sínum, og hann hló og hló og fyrir vikið var erfiðara að labba. Göngulagið var svolítið eins og hann hefði fengið sér í aðra tánna....
Dagmamman setti hann á vigtina heima hjá sér og gat ekki betur séð en að hann væri hátt í 12.5 kg - í öllum fötunum :o) Ætli hann verði ekki orðinn þyngri en Elma Hlín með vorinu.

Eitt af því sem við höfum verið að bralla í nóvember er að setja heimateknu videóin okkar á aðgengilegra form. Mikið rosalega er gaman að horfa á þessi brot úr lífi okkar fyrir nokkrum árum. Það sem var verið að vinna í núna eru videó tekin þegar Elma Hlín er rúmlega 2 ára og þvílíkur snillingur sem þetta barn er. Hún var, og er reyndar enn, alltaf syngjandi og eitt af því sem hún hefur gert svo mikið af er að syngja leikinn sinn, þá syngur hún hvað er að gerast í leiknum. Annars er hún orðin ansi mikið spennt fyrir jólunum þessi snót og fær alveg spenning í kroppinn þegar við erum að tala um jólin, alveg dásamlegt. Við höfum haft pakkadagatal hingað til en í þetta sinn ætlum við að hafa dagatal sjónvarpsins og það er líka mikil spenna fyrir því að sjá hvernig þetta virkar allt saman.

Í nóvember fór Elma Hlín að spyrja hvenær við ætluðum eiginlega að gera laufabrauð svo ég benti henni á að það væri betra að spyrja ömmu um það. Amma gat frætt hana á því og á laugardaginn var fórum við til Möggu frænku og skárum út ca 130 kökur. Elma Hlín var bara nokkuð dugleg og iðin við að fletta og það voru bara 2 kökur sem báru þess merki að barn hefði verið að verki. Já og hún hélt sig bara vel að verki þrátt fyrir að Mamma Mia væri í gangi í næsta herbergi, fór bara nokkrum sinnum að athuga hvað væri að gerast :o)
Það er sko aldeilis uppáhald sú mynd og hún syngur þessi lög hástöfum og vill helst alltaf hlusta á þau þegar við erum í bílnum. Hún er reyndar með sína eigin útgáfu af textum við sum lögin - gæti reyndar líka verið finnska þýðingin :o)

Eitthvað eru veikindi búin að vera að plaga okkur í nóvember og þá helst okkur Elvar Hrafn að þessu sinni. Hann fékk berkjubólgu sem gekk þó hratt til baka og svo var magakveisa eitthvað að hrella okkur líka. En við erum orðin brött í dag.

Eitt nýtt hjá honum Elvari Hrafni er að fara að gráta þegar við förum fram á kvöldin eftir að hafa lesið fyrir hann. Þá er hann óskaplega sár yfir því að þurfa að vera einn og það lagast allt ef við komum inn til hans aftur. En það er ekkert í boði að fá yfirsetu þar til maður sofnar á okkar heimili - hljómar kannski harðneskjulega fyrir sumum en þau fá fullt af knúsi og keli allan daginn - svo hann verður bara að læra að sofna sjálfur. Enda er þetta grátur í stutta stund og svo sofnar hann. Þetta hefur komið fyrir kannski 5 sinnum undanfarna viku eða svo og vonandi er hann bara búinn að læra að við erum bara handan við hornið svo hann getur sofið alveg rólegur.

Í gær átti Valgeir afmæli og Elma Hlín var búin að spyrja oft hvernig afmæli hann ætlaði að hafa í þetta sinn en hún hélt að pabbi sinn ætlaði alltaf að halda búningaafmæli saman ber kúrekaafmælið í fyrra. Eitt af því sem við gáfum honum var pönnukökupanna og hún var óspart notuð í gær enda tókum við á móti þremur settum af gestum. Það var nú frekar flott þegar amma Tóta var að fara yfir deiggerðina og almenna pönnuköku tilburði hjá honum, kona sem bakaði pönnukökur á hverjum degi til fjölda ára. Og Elma Hlín fylgdist með á kantinum. Það koma myndir af því og fleiru skemmtilegu alveg á næstunni.

Segi þetta gott í bili og óska ykkur huggulegrar aðventu.

Posted by ÞóreyArna at 01.12.08 17:20