Já nú fer hver að verða síðastur til að setja inn færslu í október svo það er best að vinda sér í þetta.
Þetta er svo sannarlega búinn að vera viðburðaríkur mánuður en það hefur líklega ekki farið framhjá neinum. Ég ætla svo sem ekkert að tjá mig um þetta hér og nú en aldrei þessu vant var gott að eiga ekki summur hjá bankanum, vera á leiðinni til útlanda eða yfir höfuð að hafa tekið þátt í fylleríinu.
Við höfum bara verið í okkar daglega amstri og átt góða daga. Það sem er kannski helst af okkur að frétta er það að ég var búin að skrifa undir ráðningarsamning við Glitni en dró það til baka í þessu ástandi, svo við hjónakornin munum áfram starfa saman í deCODE, eins og okkur líkar reyndar vel, en það er vissulega áhættusamt að hafa öll eggin í sömu körfunni. Vonandi þurfum við ekki að súpa seiðið af því. Annað fréttnæmt er, að nú getum við dobblað Elvar Hrafn til að ganga á milli okkar allt upp í svona 2 metra. Til að fá hann af stað er gott að hafa eitthvað matarkyns eða annað spennandi á hinum endanum :o) hann labbar stundum af stað sjálfur 1 skref frá þeim stað sem hann stendur á en lætur sig svo síga niður á hnéin og skríður af stað. Hann er ósköp góður að dunda sér og getur leikið sér drjúgt lengi inni í herbergi aleinn. Um daginn vakti hann systur sína á svo fallegan hátt, hann skreið inn til hennar, upp í rúm, kyssti hana á kinnina og strauk svo á henni bakið. Er hægt að vakna við eitthvað betra?
Þau eru ósköp góð saman, hún er þolinmóð við hann og vill honum allt hið besta. Ef eitthvað er þá nýtur hann kannski full mikið góðs af því hvað hún er góð við hann því stundum hallar á hana. En hún veit að hún fær dótið eftir stutta stund ef hún leifir honum að fá fyrst. Hann er reyndar mjög góður að gefa og réttir manni nánast alltaf ef maður segir: takk.
Elma Hlín er mjög upptekin af umhverfinu og umhverfisvernd þessa dagana og vikurnar. Það er vegna þess að hún er í umhverfisráði í leikskólanum og þar er mikið spáð í slíka hluti. T.d. kom hún heim einn daginn og vildi fara yfir alla ofnana og stilla þá á 1. Hún er búin að fræða okkur á því að það þarf ekki mikla sápu, maður á að slökkva ljósin þegar maður fer úr herberginu og í dag sagði hún að maður ætti að kaupa klósettpappír með svani á ( ekki mynd á pappírnum heldur endurvinnslusvaninum á umbúðunum ). Þá fór hún með leikskólanum í Sorpu og þar fengu þau gefins þrauta-/litabók sem hefur fengið mikla athygli hér á bæ. Mér finnst þetta allt hið besta mál og alveg frábært að fá þessa vitund inn hjá börnum sem vonandi nýtist þeim alla tíð.
Eins og sum ykkar vita þá fór hún Valey Sara til Ástralíu á dögunum og það eru nú aldeilis spennandi sögur sem hún færir okkur þaðan. Nú er hún í girðingarvinnu á litlu kúabúi þ.e.a.s. bara með 1000 kýr. Á þessum bæ býr reyndar bara bóndinn og þau 2 eru í því að girða fleiri ferkílómetra. Hún á von á að vera þarna í 3 vikur eða svo og fara svo á nýjan bæ. Hún er búin að sjá kengúrur á faraldsfæti, sjá emúa rétt upp við bíl sem hún var í, láta frosk hlaupa yfir tærnar á sér, fara á hestbak, fá landvistarleyfi í Tokyo frá flugvellinum, ferðast tæpa 900 km inn í Ástralíu frá Brisbain og sitthvað fleira. Það er alltaf spennandi þegar við heyrum frá henni sem er þó ekki nógu oft því hún er búin að vera í mjög stopulu netsambandi. Vonandi getur hún farið að blogga reglulega fljótlega. Fyrir áhugasama þá má lesa um Ástralíuför hennar hér: www.valeysara.bloggar.is
Og það er nú fleira að frétta af systrum mínum því Sóley Lára og Birkir eiga von á tvíburum nú í janúar ( já eða fyrr... ) og hér má fylgjast með þeirra síðu: www.birkir.net/b1/erfingjarnir
Já það er sko nóg um að vera en ég læt þetta gott heita að sinni og minni bara á myndir í lokin.