september 24, 2008

Haustaðlögun

Nú er langt liðið á september og við fjölskyldan búin að koma ágætis rútínu á okkar líf. Allir hafa aðlagast nýjum aðstæðum vel en það lítur þó út fyrir frekari breytingar hjá okkur þegar lengra líður á haustið, meir um það síðar!!
Elma Hlín er byrjuð í fimleikum og finnst það ekkert smá spennandi. Reyndar eru bara 2 æfingar búnar og ég er búin að vera á þeim báðum og það er svo gaman að sjá þegar hún er að byrja á einhverri æfingu og eftir því sem hún er endurtekin oftar nær hún betra valdi á henni. Þessar æfingar eru á þriðjudögum frá kl 17:30 - 19:00 svo það er ansi mikið span á mér eftir vinnu þann dag. Ég hjóla heim og undanfarna þriðjudaga hefur verið ansi hvasst og áttin mér ekki hagstæð. Þegar ég svo loks kemst heim þá hendist ég í sturtu og út aftur með hana. Það væri nú lúxus ef fimleikarnir hjá Fylki væru komnir í Mest húsið, þá væri þetta ekki svona mikið span og auðvita frábært að eitthvað gott starf fari í húsið. Auð hús eru alltaf svolítið sorgleg. Nú er hún í skólahóp í leikskólanum og í honum er hún að fá verkefni heim. Er reyndar bara búin að fá eitt og það var að skrifa niður hvað henni þætti skemmtilegast í leikskólanum. Hún var ekki lengi að svara því: Vera í skólahóp. Það er gaman að sjá að þau verkefni höfða til hennar og vonandi verður þessi sami áhugi fyrir skólastöffi hjá henni næstu 10-15 árin :o)
Elma Hlín stautar sig fram úr einföldum orðum en bara í hástöfum og ég held að ef við héldum þessu eitthvað að henni þá yrði hún ekki lengi að verða læs. En þetta er eitthvað sem við dúllum bara við þegar hún hefur áhuga. Það sem mér finnst hins vegar meira um vert er að hún getur sjálf fundið sér einföld orð og skrifað þau niður, oftast stafrétt. Þá segir hún orðin hægt og heyrir úr hvaða stöfum orðin eru búin til úr og ýmist skrifar þau eða stafar fyrir okkur. Okkur foreldrunum til ómældrar gleði og stolts.
Elvar Hrafn er búinn að fá 3 jaxla og einn er annað hvort búinn að ryðjast upp eða gerir það á næstunni. Hann er búinn að vera með hita með þessu og auk þess slatta af hori. Það er svo fyndið að hann hefur alla sína tíð ( já þetta eina ár ) verið mikill jafnaðargeðs drengur en nú er að verða nokkur breyting þar á. Eftir að hann fór til dagmömmunar og þarf að hafa fyrir lífinu með fleiri börnum þá hefur hann komist að þeirri niðurstöðu að það sé gáfulegt að gráta ef maður fær ekki það sem maður vill og aukin dramatík gæti hugsanlega aukið líkurnar á að ná árangri. En við foreldrarnir reynum að vera samstíga í því að láta þetta ekki virka meðvituð um að það fengum við bara í hausinn á næstu árum, oft!!!
Annað sem hann er að prakkarast þessa dagana er að bíta, hann er búinn að narta í 2 börn hjá dagmömmunni og í gær beit hann systir sína ógurlega í andlitið svo það sér á henni rauðan tannfara hring á kinnbeininu. Vonandi lætur hann af þessari slæmu iðju hið fyrsta og ég vona sannarlega að þetta hafi eitthvað með jaxlatökuna að gera. Elvar Hrafn er ekkert farinn að æfa sig í að labba einn og virðist ekkert hafa hugmynd um að það sé eitthvað sem hann gæti hugsanlega gert. Hann sleppir höndunum stundum þegar hann er eitthvað að dúlla sér en það virðist alltaf vera óvart, ekki meðvitað. Mig dreymdi um daginn að við vöknuðum einn morguninn og Elvar Hrafn væri farinn að ganga, ég sagði við Valgeir að kannski væri þetta eitthvað sem hann væri búinn að gera lengi en við værum bara að sjá þetta í fyrsta sinn. Svo leit ég á úrið mitt til að sjá dagssetninguna til að muna hvaða dag hann hefði labbað fyrst. Það stóð 27 á úrinu svo nú er bara að bíða og sjá hvað gerist 27. október því ég get ekki séð að hann sé neitt á leiðinni að fara að labba 27. september :o) Hann er alltaf jafn mikið keludýr og það er svo gott að halda á honum eða kúra með honum uppi í rúmi þegar hann kemur og knúsar mann. Svo gefur hann svo góða ( og blauta ) kossa. Hann er orðinn mjög duglegur að leika sér og fyrir þó nokkru síðan fór hann að gera bílahljóð þegar hann keyrir bíla á gólfinu. Nú erum við að æfa dýrin :o)
Um næstu helgi er heimalandasmölunin og þá er nú líf og fjör á Bálkastöðum. Og í október eru ýmist atburðir á dagskránni, má til dæmis nefna litadag okkar 5dk kvenna sem að þessu sinni er í umsjón Sirrýjar og Siggu Maju og mikill spenningur er fyrir. Frekar af því síðar.

Posted by ÞóreyArna at 24.09.08 21:58