Við höfum verið svolítið á faraldsfæti þetta sumarið og það er vel. Í gegnum tíðina höfum við Valgeir gert þó nokkuð af því að ferðast en síðustu tvö sumur hefur verið lítið um það vegna óléttu og barneigna. Það var því alltaf á döfunni að reyna að fara eitthvað í sumar og auðvita ferðumst við um á erfðagóssinu, Patrol. Það er nú svo fyndið með þennan bíl að pabbi og mamma keyptu hann árið 1992 og það er óhætt að segja að hann hafi verið notaður “svolítið” síðan þá því hann er keyrður ca 520.000 km og slær ekki feilpúst ( juuu, eins gott að það breytist ekki við þessa færslu ) og strákarnir, þ.e. tengdasynirnir, hlúa nú að honum sem nýr væri og eru hæst ánægðir með að hafa hann til brúks hér sunnan heiða. Og á honum höfum við hossast aðeins um landið í sumar. Fórum í júní á Strandirnar, gistum fyrst í Bjarnarfirði og þar fann Elma Hlín spóahreiður á tjaldsvæðinu. Þar var mjög fallegt veður en óneitanlega mjög kalt um nóttina. Þaðan héldum við áfram norður Strandir og áðum næst í Djúpuvík, þar fóru Valgeir og Elma Hlín í skoðunarferð um gömlu síldarverksmiðjuna en ég og Elvar Hrafn í gönguferð um næsta nágrenni. Svo hittumst við aftur eftir að túrnum þeirra lauk og ætluðum að fá okkur nesti. Ég setti höndina í vasann til að ná í bíllyklana en ..... engir voru lyklarnir!!!!! Úppsss ég var búin að týna þeim á göngunni og hinir lyklarnir í Reykjavík. Nú var að reyna að hugsa skírt og fara yfir gönguna og hvað ég hafði gert. Þá mundi ég að ég hafði tekið myndir á símann minn og ég mundi vel hvar það var svo við örkuðum þangað og þar glampaði á þá í sólinni, mér var MIKIÐ létt. Við fengum okkur nesti við hleðslu í fjörunni og héldum svo áfram. Við keyrðum hægt í gegnum Trékyllisvík og höfðum stutt stopp í Ingólfsfirði því börnin sváfu. Í Ófeigsfirði tjölduðum við og skelltum okkur svo í fjöruferð. Eftir rosa gott grill hafði Elma Hlín orð á því að sig langaði í fjallgöngu og við vorum svona lala spennt fyrir því. Þá sagði hún: “Afhverju gerum við ekki eitthvað erfitt”. Við gátum ekki annað en brosað að þessu og faðir hennar heldur meira en ég og vildi meina að nú, fremur en endranær, líktist hún móður sinni. Svo við mæðgur fórum í fjallgöngu en á leið okkar að næsta “fjalli” fundum við afvelta kind sem ég reysti við og svo við náðum í Pétur Ófeigsstaðahaldara sem lét eigandann vita. Nú, við Elma Hlín röltum upp og komum svo við hjá kindinni á niðurleiðinni en þá var hún dauð. Svo við létum Pétur líka vita af því til að spara bóndanum ferðina úr Trékyllisvík að ná í hana. Daginn eftir fórum við norðar en bærinn og héldum út að Hvalá. Þar röltum við að fossinum en ég get ekki neitað því að ég horfði oft í kringum mig leitandi að hvítum þústum á ferðinni. Þetta rétt eftir að hvítabirnirnir fundust á Skaga sem er beint á móti og ekki ólíklegt að þeir hefðu eins geta náð landi þarna eins og á Skaga. En sem betur fer virtist sem við værum ein á ferð. Þegar Hvalárskoðun okkar lauk héldum við úr Ófeigsfirðinum og í Ingólfsfjörð og í þetta sinn stoppuðum við og sýndum börnunum. Fórum auðvita inn í gamla síldarbræðslutankinn og fengum okkur svo nesti út undir húsvegg þar sem krían var ekki að missa sig. Næst héldum við í Norðurfjörð og þaðan í sundlaugina á Krossnesi. Hún er mjög skemmtileg, ca 10 m frá fjörunni. Þar vorum við í geggjuðu veðri og nutum okkar vel. Á heimleiðinni fannst okkur tilvalið að teygja úr okkur á tjaldsvæðinu í Bjarnarfirði sem við höfðum gist nóttina áður og auðvita kíktum við aftur á hreiðrið. Viti menn, var ekki bara einn unginn á leiðinni út og það þótti okkur gaman að sjá. Þennan dag fórum við í Bálkastaði þar sem var heyskapur í gangi sem Elma Hlín og Valgeir tóku þátt í.
Næsta reisa sem við fórum í var út í Flatey. Geir granni ( nágranni ) og dætur hans þær Sara Hlín og Freyja Rún voru í viku þar og hvöttu okkur til að koma og heimsækja sig. Við Valgeir ætluðum að fara þangað í eftir-brúðkaup-vikunni okkar en þar sem ég festist í hálsinum þá hættum við við í bili, tja eða í 6 ár :o)
Við vöknuðum að ganga sex og Elvar Hrafn fór í pössun til Sóleyjar Láru en við hin keyrðum á Stykkishólm og náðum Baldri kl 9. Það tekur ca 1 og 1/2 klst að sigla út og við fórum í glaðasólskini og blíðu. Þegar við komum í Flatey biðu Geir og stelpurnar eftir okkur á bryggjunni. Hann tók svo Elmu Hlín en við fórum í skoðunarferð um eyjuna með leiðsögustúlku. Við hittum þau svo eftir hana og vorum ýmist í gönguferðum, afslöppun, 8 ára afmæli eða fjöruferðum þennan dag. Enduðum svo á að borða dýrindis súpur á hótelinu. Við tókum svo seinni ferjuna til baka í land og keyrðum til Reykjavíkur á ný og vorum komin heim að ganga 11 um kvöldið eftir góðan dag.
Síðasta ferð okkar var helgina 18. - 20. júlí en þá fórum við í Þjórsárdalinn með Bjarna, Bylgju, Stefáni Inga, Óla, Sirrý, Þórdísi og fleira fólki. Við fórum á föstudaginn og veðurspáin lofaði góðu. Mest megnis stóðst hún en það var þónokkur gjóla sem við höfðum ekki gert ráð fyrir. En við létum það nú ekki trufla okkur við góða skemmtun og góðan félagsskap. Á laugardaginn var alveg geggjað verður og þá fórum við m.a. að vaða í ánni og í sund. Á sunnudeginum fórum við og Óli, Sirrý og Þórdís svo í bíltúr inn í Veiðivötn, í Landmannalaugar, Landmannaleið aftur í Vestur átt og í siðmenninguna gegnum Landssveitina. Þá vorum við búin að taka frá eina helgi núna í júlí til að ganga Fimmvörðuhálsinn en þar sem það rigndi ógurlega þá hættum við í bili. Og ekki er ferðum okkar lokið þetta sumarið því í næstu viku höldum við til Danaveldis með flestum meðlimum Fimmtudagsklúbbsins og það er komin spenna í hópinn :o) Hver veit svo hvað við gerum fleira í ágúst....
Eiríkur og Kristín Amelía eignuðust stúlku 23. júlí síðast liðinn og nú bíðum við spennt eftir fréttum af Ingu Birnu og Helga og svo eiga Gaui frændi og Birna líka að fara að verpa á næstu dögum. Yndislegt alveg hreint.
Ef einhver nennti að lesa alla leið hingað þá get ég frætt ykkur á því að það er komið fullt af myndum. Þeir sem eru í vandræðum með að skoða myndirnar þurfa að vita að eftir að albúmið er valið hér efst vinstra megin þá kemur upp blá síða og þar þarf að smella á hnapp sem á stendur: login ( efst í hægra horninu). Þá þarf að setja inn aðgangsorð og leyniorð sem hvoru tveggja er: gestur
Njótið vel
Posted by ÞóreyArna at 26.07.08 22:57