júní 17, 2008

Hæ hó jibbý jey -Júnítíðindi

Jebb... júní er rúmlega hálfnaður, Elvar Hrafn orðinn 10 mánaða og Elma Hlín að verða 5 ára. Svo það má með sanni segja að tíminn fljúgi áfram en við reynum að njóta líðandi stundar sem best við megum. Ég var að setja inn myndir sem auðvita segja betur en nokkur orð það sem á daga okkar hefur drifið í maí og það sem af er júnímánuði. En til að stikla á stóru þá höfum við farið í sauðburðinn, notið góðviðris daga ýmist í almennri útiveru eða bara á pallinum, þroskast, farið á skólahátið hjá Norðlingaskóla, fengið göt í eyrun, og sitt lítið af einhverju fleiru. Það er alla vega alveg á hreinu að okkur leiðist sko ekki.

Í síðustu viku byrjaði Elma Hlín á sundnámskeiði og það gengur bara ágætlega en það getur stundum verið erfitt að muna að maður á að vera að horfa og hlusta á kennarann allan tímann :o) Hún verður á námskeiðinu út þessa viku en hún er komin í sumarfrí frá leikskólanum frá og með deginum í dag og verður í fríi fram í miðjan ágúst. Við stefnum á að eiga margar kósýstundir þangað til, ummmm. Hún er úti að leika sér flestum stundum og það er alveg dásamlegt að eiga svona góða granna og góð grannabörn. Þau eru svo dugleg að leika sér, kríta, hjóla og hlaupahjólast og finnst ekki sanngjarnt þegar við köllum á þau inn til að fara að sofa. Bara hið besta mál.

Elvar Hrafn hefur tekið stórstígum framförum síðan síðast, nú skríður hann um allt á fjórum fótum og stendur upp út um allt. Okkur finnst voða gaman að fylgjast með honum og dásama hann. Það gengur líka ágætlega að siða hann til - tja svona oftast :o) Hann byrjar daginn yfirleitt milli 6 og 7 en hann er ekki með vesen þó hann sé vaknaður, hann getur unað sér í dágóða stund áður en hann vill fara á fætur, foreldrunum til ómældrar ánægju. Hann fór í sína fyrstu næturgistinu nú um helgina og heillaði mömmu sína alveg upp úr skónum með því að vinka bless í fyrsta sinn þegar við vorum að kveðjast. Mamma var í bænum og pabbi kom og sótti hana og börnin á laugardeginum því við vorum að fara í útskrift hjá Bjarna kennara. Á sunnudeginum fórum við svo norður með tengdó og eyddum deginum þar og tókum börnin með suður. Í lok maí ruddust niður 3 tennur á 3 dögum í efri góm og svo kom 4 í gær. Þannig að hann hefur slefað eftir því en ekki verið að taka nein dramaköst yfir þessu :o) Þá hefur hann stækkað um 2,5 sm á einum mánuði. Bæði það og tanntakan gæti útskýrt nokkrar óværar nætur, en þá hefur hann verið að brölta, búinn að skríða sig út í horn, standa upp sofandi en vælandi og verið eitthvað að kvarta en það er kannski ekki skrítið miðað við allt og allt. Hann er sem sagt orðinn 75 sm og 9.760 gr í 10 mánaða skoðuninni, hann heldur sinni kúrfu og er einu striki yfir meðalkúrfunni. Vonandi tókust kynbæturnar hjá okkur það vel að hann verði hávaxinn eins og pabbi :o)

Sumarið er svo sem ekki mikið skipulagt hjá okkur. Valgeir mun taka sér frí þegar stemmingin er þannig í júní og júlí en vera í fullu feðraorlofi í ágúst. Hann verður svo í hálfu orlofi á móti vinnunni frá september og fram að áramótum. Ég fer að vinna í byrjun september eftir árs fæðingarorlof. Ég vildi að allir gætu tekið ársfæðingarorlof, þetta er bæði mikilvægur og dásamlegur tími.

Ætli sé ekki best að fara að halla sér til að vakna ferskur á þjóðhátíðardeginum því mig grunar að við eigum nú eftir að bralla eitthvað skemmtilegt saman.
Over and out!!

Posted by ÞóreyArna at 17.06.08 00:07