Með þessu áframhaldi þá gætu orðið 12 færslur á þessari síðu þetta árið, betra en sum árin og mun verra en önnur. En það er nú ekki eins og þetta sé síða fyrir okkar helstu hugarfóstur, meira svona frontur á myndunum okkar og lágmarks upplýsingaveita :o)
Talandi um myndir, þá er kominn hlekkur fyrir myndir þessa árs hér uppi í vinstra horninu og bæði aðgangsorð og leyniorð er það sama og fyrir hin albúmin. Ef þið eruð ekki með það en langar að nálgast það þá ekki hika við að senda póst, thoreyarna@gmail.com
Fyrir sérlega áhugasama þá eru komnar inn fleiri myndir af jólunum í desember albúmið.
Hvað get ég nú sagt ykkur af okkur fjölskyldunni.
Jú, ég er búin að bæta við mig einu ári en hey, hver er að telja.... Ég veit reyndar um eina sem telur og það er Kristjana, hún nýtur ávallt þeirra 11 daga sem við erum jafngamlar en í gær tók hún svo forskotið aftur og í tilefni af því var hún svo sæt að bjóða okkur Sonju með sér í leikhús. Við sáum Baðstofuna eftir Hugleik Dagsson og það var gaman að sjá það en það er samt svo margt í því sem olli mér reiði en samt hló ég svo oft. Ég get ekki komið með neitt eitt orð sem lýsir minni upplifun en get helst líkt því við að lesa bók eftir t.d. Guðrúnu frá Lundi eða bara almennt bækur um "gamla daga" því það er eilíf eymd og fólk virtist varla glaðan dag sjá. En verkið er auðvita kómísk nálgun á þessar gömlu sögur. Já, alltaf gaman að fara í leikhús. Á eftir fórum við svo á Tapas og kvöldið er aldrei nógu langt fyrir okkur og allar okkar reynslusögur, það er skemmst frá að segja að það voru allir farnir nema við og þjónarnir og þeir voru farnir að gefa okkur auga.... illt auga :)
Takk fyrir kvöldið kæru vinkonur.
Stór hluti fjölskyldunnar okkar er nú farinn til Argentínu, já Óli, Sirrý og Þórdís eru að þvælast í Argentínu allt fram í apríl og hægt er að lesa um ævintýri þeirra á www.olikrummi.blogspot.com Já ég sagði fjölskyldu því við höfum jú brallað mikið saman í gegnum tíðina og ungbarnasundkennarinn hélt að við ættum ekki aðskilið líf og gerði algerlega ráð fyrir því að við værum líka að fara til Argentínu fyrst þau væru að fara.
Skemmtisögur af Elmu Hlín:
- Fljótlega eftir jólin fór Elma Hlín að nefna við okkur eftir að hún var komin upp í rúm á kvöldin að hún heyrði svona fótatak inni í höfðinu á sér..... ég get nú ekki neitað að það fór nett um mig. En Valgeir fattaði eitt kvöldið hvað olli þessu fótataki.... það var veggklukkan sem við gáfum henni í jólagjöf :o)
- Eitt sinn er við vorum í Blöndó á dögunum segir Elma Hlín við ömmu Jóu að það sé einhver að banka. Það heyrði það enginn annar og Jóa nefndi við hana að hún héldi nú að svo væri ekki. Jú, Elma Hlín var alveg hörð á því að það hefði einhver verið að banka og dobblar ömmu sína til að fara að athuga. Þær rölta að hurðinni og Jóa opnar hana og þá segir Elma Hlín: Þú varst að opna fyrir leynivini mínum
- Í gær sat snillinn okkar á gólfinu inni hjá sér með litla skrifblokk og blýant í hönd og Elvar Hrafn var inni hjá henni. Hún kallar svo eitthvað í mig og ég fer að skoða í bókina hjá henni og þá var hún búin að skrifa alveg sjálf ( og átta sig á því hvaða stafi hún átti að skrifa ) orðið Perla Rósa, reyndar án e-sins í Perla. En þetta nafn er svona uppáhalds nafn hjá henni um þessar mundir, hún stakk til að mynda upp á því að sæta kisan þeirra Valeyjar Söru og Björvins myndi fá þetta nafn. En hún fékk nafnið Fella Mjásalín og hér er heimasíðan hennar
Þroskasögur af Elvari Hrafni:
- Hann er orðinn 6 mánaða
- Hann veltir sér á magann nánast samstundis og hann er lagður niður á bakið
- Hann er orðinn duglegur að sitja sjálfur en auðvita koma bakföll inn á milli svo við treystum honum ekki án öryggispúða
- hann bakkar orðið um allt
- hann er búinn að fikta í magnaranum í fyrsta sinn, það er voða sætt í fyrsta sinn en héðan í frá er það bannað
- hann er búinn að læra að "vera" indíáni þ.e. gera indíánahljóð
- hann kafar eins og selur og fer meira að segja í höfrungadýfur ( ekki það að selir fari í höfrunadýfur... )
- hann er voða duglegur að fara að sofa, drekkur milli sjö og átta og er svo lagður í rúmið sitt og þá fer ég fram. Við þurfum bara að fara inn til hans ef hann missir snudduna og svo bregst það nánast ekki að hann vaknar 00:00 ( ok, 10 mín til eða frá ) og grætur örlítið þar til við erum búin að setja snudduna upp í hann á ný og þá sefur hann þar til klukkan er á milli 03 og 04 og fær sér að súpa á ný
- hann er súperman ( sjá myndir í janúar )
- hann fékk fyrsta hláturskastið sitt í fanginu á Sóleyju Láru um daginn þegar móðir hans var með endalaus fíflalæti fyrir framan hann og hún æstist um allan helming við þessi viðbrögð hans
- hann heldur áfram að vera svona pollrólegur í skapinu og brosir til allra er á hann yrða
- hann er alger snillingur
Sumir myndu nú segja að þetta væri bara komið gott í bili svo ég læt þetta gott heita að sinni.
Posted by ÞóreyArna at 16.02.08 00:07