september 13, 2005

Uppgjör sumarsins 2005... já og svona eitthvað fram á haustið

Þó svo að það hafi ekki margt gerst á þessari síðu í blogginu þá er nú ekki hægt að segja það sama um lífið okkar og sökum anna þá höfum við ekki eytt meiri tíma en raun ber vitni um í það að koma efni hér á síðuna. En undanfarið höfum við þó verið að setja smám saman inn myndir frá liðnum vikum og mánuðum og skal hér gert grein fyrir þeim og atburðum sumarsins.

Svona var sumarið 2005
11. júní giftu Róbert og Guðný sig í Reykjavík
17. – 19. júní vorum við að þvælast á Kaldadal, Grjóthálsi, Bálkastöðum og á Snæfellsnesinu eins og áður hefur komið fram
27. júní varð Elma Hlín 2ja ára
8. júlí héldum við fimmtudags-stelpur bleikt partý og enduðum á Nasa þar sem Sálin var að spila
9. júlí giftu Anna Sigga og Kristján sig á Hvanneyri
12. -15. júlí vorum við í Aðalvík á Hornströndum
16. júlí giftu Sonja og Elvar sig á Akureyri
19. – 20. júlí forum við norður Kjöl og gistum í Ásgeirsbrekku ásamt þeim Færeyjarförum sem fóru með ferjunni
21. -25. júlí vorum við í Færeyjum í tilefni af því að Daddi og Beinta voru að gifta sig – það má sjá hlekk á það í síðasta bloggi
28. júlí – 1. ágúst vorum við í Kaupmannahöfn. Þar fórum við í dýragarðinn, Tívolí, Christjaníu, Strikið, Fields og Fisketorvet, Nýhöfn, Magasin, Hvítvíns stofuna, Carlsberg verksmiðjuna og hápunkturinn og aðaltilgangur ferðarinnar voru U2 tónleikar á Parken. Þar náðum við að vera upp við svið og þetta var bara GEÐVEIKT!!!!!! Vildi svo sannarlega eiga myndir frá því en það mátti ekki vera með myndavélar á svæðinu. Það kom rosaleg rigning og við vorum gegndrepa en það skemmdi ekkert fyrir en þegar við fengum um síðir svarta ruslapoka til að klæðast þá þágðum við það engu að síður og kannski eins gott því það hætti bara ekki að rigna. Við gengum svo heim um nóttina með sælubros aftur á hnakka og samskonar bros er ansi fljótt að hoppa fram aftur þegar við ræðum um þessa tónleika – já eða bara hlustum á Vertigo
5. – 7. ágúst vorum við á ættarmóti hjá niðjum Árna afa og Önnu ömmu, það var haldið á Fossatúni í Borgarfirði
12. ágúst fóru fimmtudagsstrákarnir í sumarbústað
13. ágúst giftu Lilja og Arnar sig í Reykjavík
20. ágúst fórum við á Menningardag í Reykjavík
22. ágúst byrjaði Elma Hlín í leikskólanum Árborg og ég í mínu síðasta fagi í HR
27. ágúst fórum við á Blómstrandi daga í Hveragerði sem var svona líka ljómandi gaman og ég endaði bara á að fara á ball og tjútta með Fanneyju og svo frændum mínum þeim Árna og Ísgeiri.

Í ágúst fórum við einnig í Húsdýragarðinn með Óla og Sirrý, fórum í afmæli til Rósu Maríu og Guðmundar Ísaks auk þess sem Valgeir fór í smá jeppaferð yfir gamla veginn að Þingvöllum.

2. – 3. September voru smalamennskur og réttir í Hrútafirðinum

3. September fórum við Valgeir í fullvissuferð með deCode, þar fórum við m.a. á kajak um Þingvallavatn

Eins og sjá má þá erum við búin að vera á þeytingi og við vorum t.d. bara eina heila helgi heima hjá okkur í allt sumar. En þetta er búið að vera ofboðslega skemmtilegt og viðburðaríkt sumar og minningar um það koma til með að ylja manni eitthvað fram á veturinn.
Auk þessara helstu atburða sem getið er hér að framan þá má sjá myndir úr okkar daglega lífi frá því í júní, júlí, ágúst og september

Af Elmu Hlín er það helst að frétta að það gegnur vel að vera á leikskóla, þó svo að hún byrji svolítið að spyrja um foreldra sína þegar byrjað er að sækja hin börnin en það er líka alveg skiljanlegt. Hún er orðin ofboðslega dugleg að tala og talar mikið, það er kannski helst þegar henni er mikið niðri fyrir að hún byrjar að flýta sér um of og þetta kemur allt út í belg og biðu. Þá finnst henni mjög gaman að syngja og þetta eru þau lög sem verða oftast fyrir valinu: Bí bí og blaka, Strætó, Sofðu unga ástin mín, Allur matur á að fara, Afi minn og amma mín, Allir krakkar, Fljúga hvítu fiðrildin að svo ógleymdu Kisa mín.
Í sveitinni er svo mikið sport að spila á píanóið og syngja með og nú er nýtt að syngja hátt, og þá vill hún að undir taki í öllu nálægu.
Flesta daga biður hún um að leira þegar við komum heim úr leikskólanum.
Um helgina fór hún svo á hestbak hjá afa sínum og þau fóru smá spotta saman, pabbi sló aðeins í og þá skríkti hún og hló því það var svo gaman að fara svona hratt. Það er annað en í vor, þá voru hrossin bara góð í meters fjarlægð eða meira.
Það bætist í stafaforðann hennar og nú þekkir hún: E, V, Þ, S, M, A, Á og K
Þá er gaman að geta þess að hún er nú skriðin yfir 12 kg og eitthvað hefur hún vaxið því buxurnar hennar “styttast” meir og meir.

Yfir og út,
Þórey Arna

P.S. ef einhver furðar sig á magni af myndum og hversu margar myndir eru af saman myndefninu þá skal því hér komið á framfæri að við eignuðumst nýja myndavél í sumar ( Nikon d70s ) og sumir (nefni engin nöfn… hóst, hóst, Valgeir, hóst) eru bara alveg að missa sig yfir þessu öllu saman :o)

Posted by ÞóreyArna at 13.09.05 12:58