febrúar 24, 2005

Veikindi aldarinnar

Alla vega það sem af er öldinni....

Valgeir kom með flensuna inn á heimilið og lá í 5 daga, eftir 4 daga vorkenndi ég honum svo mikið að ég ákvað að taka eitthvað af þessu á mig og það sér ekki fyrir endan á þessu hjá mér. Ég er búin að vera veik síðan á sunnudagskvöldið og í gærkvöld var Elma Hlín líka komin með hita og hor. En við ætlum í sveitasæluna um helgina til að jafna okkur og auðvita til að sjá nýja hundinn hana Týru. Elma Hlín er meira að segja búin að læra að segja það, Týa. Svo er hún líka farin að svara þegar hún er spurð hvað hún heiti en því er ekki að neita að það hljómar mjög líkt og afmæli þ.e. eins og hún ber þessi orð fram. Munurinn liggur helst í A og E... og svo mismikilli áherslu á H eftir því hvað hún vandar sig mikið. Í morgun vorum við að lesa í 1000 fyrstu orðin og hún kom mér enn á óvart með að þekkja hluti sem ég minnist ekki að við höfum verið að kenna henni, eins og t.d. hjólbörur.

Annars var ég að setja inn myndir af dömunni fyrir áhugasama eins og t.d. móðursystir á Akureyri sem verður í Danaveldi eftir nokkra daga!!!

Góðar stundir

Posted by ÞóreyArna at 24.02.05 23:10