Við vorum að koma frá Kristjönu, Frey, Óla Fjalari og litlu systur. Við fórum að kíkja á þau um daginn en getum bara ekki slitið okkur frá þessari skemmtilegu fjölskyldu og þessum fallega nýja meðlim í henni, innilega til hamingju með hana. Það er hægt að sjá þessa myndarlegu dömu á síðunni þeirra. Nema hvað, þegar við vorum að hátta eldri grislingana, Elmu Hlín og Óla Fjalar, þá fóru þau að hoppa berrössuð í rúminu hans Óla Fjalars og það var nú ekki lítið fjör og þau hlógu og hlógu og veltust um. Freyr tók þetta upp á nýju videóvélina ;) og það verður nú gaman fyrir það að sjá þetta eftir svona 12 ár!!!! Alla vega þá skemmtum við foreldrarnir okkur konunglega yfir þessu athæfi. Reyndar er Elma Hlín ekki alveg farin að hoppa ennþá þannig að tærnar lyftist frá jörðu en þá kom bara mamma til hjálpar. Dudurudu duduru.... Indiana Jones stefið þið vitið.....
Svo er gaman að segja frá því að Gaui frændi, Birna og Egill Helgi eignuðust stelpu á fimmtudaginn var, hún var nú engin smá smíð, 17 og 1/2 mörk og 57 cm ef mínar heimildir eru réttar. Innilegar hamingjuóskir á Selfoss.
Annars ber það helst til tíðinda á þessu heimili að ég er að hefja síðustu námsviku þessarar annar og svo hefjast prófin 15. nóvember og Valgeir og Elma Hlín fara til ömmu og afa á Bálkastöðum á föstudaginn þar sem Elma Hlín verður þar til Valgeir kemur aftur frá Köben af Microsoftráðstefnunni.
Septembermyndir
Októbermyndir
Nóvembermyndir