maí 12, 2004

Maífréttir

Hvað getum við sagt ykkur spennandi í dag... jú við skulum byrja á því að deila því með ykkur að Elma Hlín er loksins búin að ná 7 kílóa-múrnum. Hún fór í skoðun 10. maí og þá var spennandi að vita hvað væri búið að gerast og viti menn, hún var orðin 7540 gr og hafði bara aldrei þyngst svona vel. Svo skoraði hún mörg stig hjá mér í gær, málið er að undanfarið hefur hún bent á mig á mynd ef Valgeir spyr hvar er mamma en í gær bætti hún um betur og benti sjálf á mig og sagði mamma. Juhú...

Svo verðum við líka að deila því með ykkur að Inga Birna og Helgi Þór eignuðust strák 30. apríl og hann er alger rúsla. Voða duglegur og heldur að hann eigi að geta allt, er t.d. að rembast við að hreifa hausinn. Við kíktum á þau í mýflugumynd um daginn og tókum auðvita nokkrar myndir.

Ég klára verkefnið mitt á morgun, því þá eigum við að verja það, æ það verður ágætt þegar þetta er búið. Valgeir fer að vinna fulla vinnuviku í næstu viku og þá hefur hann líka tíma til að hjóla um fjöll og firnindi því á föstudaginn förum við mæðgur í sauðburðinn. Reyndar keyrir hann okkur og verður hjá okkur um helgina og vonandi þær helgar sem við verðum í burtu. Stefnan er svo að koma suður aftur 1. júní, pakka niður og halda á vit ævintýranna þann 3. júní en þá erum við fjölskyldan að fara til Calpe á Spáni og verðum þar í 2 vikur. Við missum reyndar af voða mörgu á þessum 2 vikum og ber þar helst að nefna brúðkaup Siggu Maju og Hauks úr karlaklúbbnum og brúðkaup Kristínar frænku Valgeirs og Steina. Við verðum svo sannarlega með þeim í huganum þann 5. júní. Svo eignast Sonja og Elvar sitt annað barn á meðan við verðum úti, það er að segja ef þau þurfa ekki að bíða jafn lengi eftir því og Örvar Erni, vonandi ekki.

Það verður því líklega lítið um blogg á næstunni en samt... aldrei að vita, kannski laumum við inn myndum af Elmu Hlín með lömbunum og svo aftur af Elmu Hlín á ströndinni :)

Maímyndir

Þar til næst gott fólk.

Posted by ÞóreyArna at 12.05.04 17:14